20.01.2012
Abba og Hóffa , Body Balance kennarar Bjargs eru báðar fjarverandi um helgina. Því verður Bryndís með jóga á laugardaginn kl
10:30. Hún ætlar að taka öflugan jógatíma með góðum stöðum, öndun og slökun. Hvetjum alla til að mæta og
hvernig væri að taka tvöfaldan tíma, Ólatíma og jóga á eftir? Frábær byrjun á góðri helgi.
19.01.2012
Það er búið að umbylta tækjasalnum og plássið orðið miklu
19.01.2012
Munið að skrá ykkur í afgreiðslunni í Hot Yoga á sunnudaginn. Látið allt íþróttafólk vita af þessum
tíma og bjóðið því með. Við ætlum að láta skrá til að byrja með svo það mæti ekki of margir.
leiðinlegt að komast ekki að. Það verður örugglega tími næsta sunnudag og kostar 500kr fyrir íþróttafólkið, ekkert
fyrir korthafa á Bjargi.
17.01.2012
Þetta er námskeiðið fyrir þá sem vilja bæta formið, laga útlínurnar og léttast um 6 kg. Frábær blanda af
æfingum sem hentar körlum á öllum aldri sem treysta sér til að æfa 6x í viku. Nokkur laus pláss fyrir áhugasama stráka.
16.01.2012
Opni Body Fit tíminn á mánudögum færist aftur um 15 mínútur og verður framvegis kl 17:30. Lokaði námskeiðstíminn er kl
16:30 á mánudögum en 16:15 hina tvo dagana.
16.01.2012
Ný námskeið fyrir þau sem eru 30kg of þung eða meira. 4 vikur, 12 manns og mætt 3x í viku kl 8:30. Gravity 2x í viku og
þoltími einu sinni. Mælingar og fræðsla fyrir þau sem það vilja. Þjálfarar eru Andrea Waage og Guðríður
Jónasdóttir. Þær eru að koma inn sem nýir kennarar hér og Guðríður er byrjuð að kenna á Gravitynámskeiðum og
hádegisþrekið. Velkomnar til starfa stelpur.
14.01.2012
Það eru aðeins 7 búnir að skrá sig í Hot Yoga tímann á sunnudaginn kl 11. það er ekki nóg og því fellur
tíminn niður. Það þurfa allir að skrá sig ef þeir ætla að koma í þennan tíma og ef skráning er léleg
þá fellur tíminn niður. Vonum að fólk taki við sér og þá sérstaklega íþróttafólkið en við
buðum þeim að mæta í þennan tíma.
13.01.2012
Það fóru út nokkrar ljósritaðar tímatöflur þar sem stóð að barnagæslan væri seinni partinn á
föstudögum. Svo er ekki og byðjumst við velvirðingar á því. Það er á döfinni að breyta gæslunni næsta
haust. Hafa hana alla morgna, etv. styttri tíma og þá verður hún ekki frí. Munum setja á lágmarksgjald.
12.01.2012
Eva og Gerður dansskvísurnar okkar eru alveg brjálaðar núna. Þær ætla að frumflytja nýtt Sh´bam á morgun, föstudag kl
17:30. Æðislegur 45 mínútna danstími með geggjuðum sporum og flottri tónlist. 12 lög og 12 dansar. Á laugardaginn kl
13 verður svo vinsæli Body Jam tíminn okkar sem er opinn fyrir alla á öllum aldri. Þar verður líka frumflutningur á nýjum
dönsum. Svaka spennandi dagar framundan í dansinum.
10.01.2012
Það var gjörsamlega troðið í alla tíma í dag og í gær og erfitt að finna bílastæði. Sniðugt að koma
gangandi eða með strætó! Hádegishópurinn okkar er mjög stór núna, um 35-40 manns í tímunum. Spinningtímarnir eru
líka vel fullir og öruggara að mæta snemma til að tryggja sér hjól. 32 mættu í Hot Yoga seinni partinn og munið að skrá ykkur
ef þið ætlið að mæta á sunnudaginn. Munið líka að skrá ykkur í Gravitytímana.