Fréttir

Páskaspretturinn

Páskaspretturinn byrjaði í dag á Hot yoga.  Þrjár vikur og æfingar 5x í viku lágmark.  Góður hópur er skráður á námskeiðið en samt er pláss fyrir nokkra í viðbót.  Góðir kennarar með mikinn metnað sjá um námskeiðið. 

Morgunþrek á miðvikudag

Næsta miðvikudag kl. 8:15 verður heitur rúllutími í stað þrektíma. Sjálfsnudd og teygjur í heitum sal, notum bandvefslosunarrúllur og litla bolta.Gott að hafa með sér vatn, vera berfættur og hafa handklæði.  Þeir sem vilja þolið mæta fyrir kl. átta, taka 500 metra á róðravél, 6 mín á hlaupabretti / stígvél og hlaupa 10 ferðir í stigann, koma svo sveitt og sæl niður í nuddið.  Hlökum til að sjá ykkur, Andrea og Guðríður 

Skólafólk tilboð!

Mánaðarþrekkort á 8.000 kr.  Gildir lengur ef verkfallið dregst á langinn.  Innifalið í þrekkorti er tækjasalur, spinning, þrektímar, Zumba, Body Pump og heitur þrektími.  10 tímar í Zumbu fyrir 5.000 kr. og 10 tímar í Hot yoga fyrir 5.000 kr.

Úrvalshópur í æfingabúðum.

Úrvalshópur frjálsíþróttasambands Íslands, 15-22 ára var hér um helgina í æfingabúðum.  Hópurinn gisti á Bjargi, borðaði, æfði, skemmti sér og naut lífsins.  Krakkarnir komu flest að sunnan en slatti að norðan og austan.

Arna Benný og Jonni með spinning

Það verða gestakennarar í spinning kl. 17:15 í dag.  Arna Benný Zumbakennari og Jonni kærastinn hennar ætla að hjóla með ykkur, svitna, puða og púla.  Bara gleði!!

Frumflutningur

Anna er búin að frumflytja nýja Body Pumpið, algert æði hef ég heyrt.  Hóffa og Abba frumflytja nýjan Body Balance á morgun kl. 17:30.  Góðar æfingar við einstaka tónlist. 

Happdrætti í Hot yoga

Það geta allir átt von á vinningi sem mæta í Hot yoga í mars.  Allir drógu miða á sunnudaginn (um 35 manns) og á miðanum voru heilræði og vinningur á einum þeirra, 10 tíma kort í Hot yoga.  Hvetjum alla sem eru með í áskoruninni að mæta lágmark 4x í viku og finna ávinninginn.  Annars eru margir að koma 1x-2x í viku sem er flott með annarri hreyfingu. 

Skólatilboð í Hot yoga og Zumbu!

Allir skólanemar geta núna keypt ódýr 10 tíma kort í Hot yoga og Zumbu.  Kortin kosta aðeins 5.000 krónur og verða til sölu út apríl.  Þessir tímar eru vinsælir hjá unga fólkinu og við ætlum að koma til móts við þau og gefa 50% afslátt af þessum kortum. 

Ódýr skólakort

Við seljum öllum skólanemum árskort í tækjasal fyrir 35.000 krónur sem er einstaklega glæsilegt tilboð.  Salurinn er vel búin með fullt af búnaði sem nútímaþjálfun krefst.  Aðgangur að öðrum sölum stöðvarinnar er frjáls milli hóptíma.  Hvetjum skólanema til að koma og skoða okkar aðstöðu, útipottana, útigufuna og útiaðstöðuna sem er okkar sérkenni yfir sumartímann.

Vinur í viku!

Árskorti í tækjasal og þrekkorti fylgir að bjóða vini að æfa með korthafa í heila viku.  Hvetjum alla til að nota þetta góða boð.