Fréttir

Nýtt útlit, aukanámskeið

Það fylltist á vaxtamótunarnámskeiðið á einum degi og kominn stór hópur á biðlista.  Abba ætlar að finna tíma fyrir annan hóp.  Þriðjudagar og fimmtudagar verða kl 16:30 fyrir báða hópa, heitur tími í salnum niðri.  Gravitybekkirnir eru 12 og því þurfum við að finna tíma á hinum dögunum fyrir Gravity.  Hún mun hafa samband við alla á biðlistanum á morgun.

Barnagæsla

Mánudaginn 30. apríl styttist gæslutíminn seinni partinn og verður til kl 18:30.  Mjög fá börn hafa verið í gæslunni seinni partinn yfir sumarið, en oftast nóg að gera á morgnana.  Í sumar munum við halda áfram að bjóða gæslu 3x í viku á morgnana en breytum í 2x í viku seinni partinn, á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl 16:15-18:30.  Erum ekki búin að dagsetja hvenær þessi breyting verður, líklega í kringum 20. maí.

Vaxtamótun og nýtt útlit

Við ætlum að skella á einu námskeiði fyrir sumarið. 

Föstudagar

Það verður lokað hér á sumardaginn fyrsta.  Síðasta föstudag voru frekar fáir í seinniparts tímunum.  Við búumst ekki við mörgum næsta föstudag, margir í burtu í löngu helgarfríi og hinir að stússast í Andrésarleikunum.  Þess vegna fellum við Body Vive og spinningtímann út. 

Hlaupanámskeið

Rannveig, Sonja og Óli voru með glæsilegt 8 vikna hlaupanámskeið í fyrra.  Þau ætla að endurtaka leikinn og byrja 23. apríl með 6 vikna námskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Viltu leiðbeiningar um hlaupastíl eða prógram fyrir hálft maraþon?  3 fyrirlestrar og æft 3x í viku kl 17:15.  Frítt á Bjarg í alla tíma og potta.  Verð 18000kr, en 14000 fyrir korthafa á Bjargi.

Breytingar á tímatöflu

Þá eru páskarnir búnir og tímunum í töflunni fer að fækka aðeins.  Þið sjáið á korktöflunni hér til hægri hvaða tímar eru hættir.  CrossFit tíminn á föstudagsmorgnum kl 6:10 færist yfir á fimmtudaga.  CrossFit tímarnir kl 8:30 á mánudögum og föstudögum verða út apríl.  Sama má segja um Body Pump í hádeginu á fimmtudögum og Body Vive og spinning seinni partinn á föstudögum.  Sumartaflan mun svo taka við eftir miðjan maí.

Gravitynámskeið

Næstu Gravitynámskeið byrja miðvikudaginn eftir páska.  Tvö námskeið verða i gangi kl 17:30 og 18:30 á mánudögum og miðvikudögum.  Námskeiðin eru ætluð fólki með vefjagigt og önnur stoðkerfisvandamál.

Body Fit boltanámskeið

Næsta Body Fit námskeið byrjar 16. apríl.  4 vikur og þú finnur mun.  Vinnum vel í djúpu kvið og bakvöðvunum og sterkari kjarni þýðir betra líf á allan hátt.  Heiti salurinn hefur slegið í gegn og hefur fjölgað í þessum tímum undanfarið.  Námskeiðið er 3x í viku kl 16:30 á mánudögum, en 16:15 á miðvikudögum og föstudögum.

Hot Yoga

Næsti sunnudagur er Pálmasunnudagur og því ekki von á mörgum í ræktina vegna ferminga og ferðalaga.  Við ætlum því að fella Hot Yoga niður næsta sunnudag.  Lokað verður á Skírdag, föstudaginn langa og páskadag.  Tækjasalur verður opinn á annan í páskum frá 10-13.  Opið verður eins og vanalega á laugardeginum en allir tímar falla niður og einn stór þrektími hjá Tryggva kemur í staðinn og verður hann kl 10:00.  Miðvikudaginn fyrir páska falla allir tímar niður sem eru eftir hádegi.  Höldum venjulegri dagskrá fyrir hádegi.

Opið fyrir alla í Zumbu á laugardögum

Það hafa verið tveir danstímar í röð á laugardögum, Zumba kl 12 og Body Jam kl 13.  Núna ætlum við að sameina þennan tíma í einn.  Eva mun dansa mest Zumbu en skjóta inn sínum uppáhaldsdönsum úr Body Jamminu.  Tíminn er opinn fyrir alla, líka þá sem eiga ekki kort á Bjargi.