Fréttir

Stór salur, nóg pláss

Nú er komin góð reynsla á stóra þrektímasalinn.  Fjölbreytni þrektímanna hefur aukist og var góð fyrir.  Plássið er líka gott og það fer vel um 40 manns og hægt að vera með 60-80 manna tíma. Nóg pláss fyrir stóra danshópa t.d. og risa þrektíma. Salurinn er til leigu fyrir sanngjarnt gjald.  Hægt er að leigja hann eitt skipti eða festa hann einu sinni eða oftar í viku.  Vinnuhópar og aðrir geta leigt salinn og verið með sína tíma og sinn kennara.

Heitir tímar vinsælir.

Bjarg er eina stöðin á Akureyri sem býður uppá tíma í heitum sal.  Hot yoga er komið til að vera og margir hafa ánetjast þeim tímum og fengið bót meina sinna, liðkast og styrkst.  Heitu bolta og þrektímarnir hennar Öbbu eru líka endalaust vinsælir og margir segja að þeir séu það besta sem þeir hafi prufað.  Fjölbreyttir tímar þar sem hún tekur tabata með boltana og ýmsar aðrar uppsetningar í hitanum.  Rúllutíminn hjá Guðríði og Andreu hefur svo slegið í gegn í haust og er eitthvað sem er líka komið til að vera.  Þær eru að kenna fólki sjálfsnudd og losun með foamrúllum, golfkúlum og litlum boltum.

Líf og fjör á kvöldin, æfing dagsins.

Já, menn eru að lyfta hér til kl 11 á kvöldin og það fjölgar bara jafnt og þétt í hópnum.  Við hækkum í græjunum og þyngdirnar fljúga upp. Nýji tækjasalurinn er að virka vel, enda er búið að liggja yfir uppröðuninni í hann og alltaf verið að laga til og halda öllu á sínum stað.  Fleiri og fleiri eru farnir að notfæra sér æfingu dagsins sem Óli setur uppá töflu í tækjasalnum.  Þetta sparar heilabrot um hvað skuli gera í dag.  Óli er með endalausar hugmyndir og samsetningar og hvetjum við fólk til að skoða þennan möguleika.

Meistaramánuður

Núna eru ansi margir að taka sig á í meistaramánuðinum, október.  Því ekki að vera með, ekki of seint að byrja núna.  T.d. að hafa samband við einkaþjálfara og vera með honum í einn mánuð.  Kannski hætta gosdrykkjunni eða vanda mataræðið í einn mánuð?  Hvað er það miðað við allt lífið að fórna einum mánuði í hollustuna?

Hot yoga fyrir íþróttafólk og aðra.

Þriðji og fjórði flokkur Þórs í handbolta og fótbolta eru með Hot yoga tíma hér á laugardögum kl 11:30.  Um 40 krakkar eru að mæta og eru að standa sig svaka vel.  Læra að einbeita sér, liðkast, styrkjast bæta vöðvaúthald.  Einnig er gaman að brjóta upp æfingamunstrið og gera eitthvað allt annað. Við getum tekið að okkur fleiri svona hópa, einu sinni í viku, einu sinni í mánuði, allt í boði.

Bjargþrekið

Hóffa og Anný verða með svakalegan þrektíma kl 9 á laugardaginn, Bjargþrekið sem er opinn tími fyrir alla sem eiga tímakort eða tækjasalskort. Þetta er tími sem rúmar 60 manns, nóg pláss og allt undir.   

Hádegisþrek

Hádegishópurinn er að stækka jafnt og þétt.  Hópurinn fær mjög fjölbreytta þjálfun því að í salnum eru t.d. tvær róðrarvélar, 12 Gravitybekkir sem auka æfingaúrvalið svakalega því í bekknum er hægt að gera um 120 mismunandi styrktaræfingar.  10 líkamsræktartæki eru í salnum, 40 spinninghjól og pallar, dýnur, lóð og stagir, boltar upphífustagir, bjöllur þyngdarboltar og svo stiginn.  Það er leitun að hóptímasal sem hefur jafn fjölbreytt tæki og þessi salur.  Vegna stærðar á salnum fer vel um 40 manns og pláss fyrir 50-70 manns. Hægt er að koma inní alla hópa hvenær sem er, ekki hika þið að koma og prufa.