Fréttir

Hot Yoga fellur niður í dag.

Hádegis Hot Yoga fellur niður í dag vegna fjarveru Öbbu .

350 þúsund í verðlaun

Glæsilegur árangur náðist á 10 vikna fimm/tveir námskeiðinu og 8 vikna lífsstílnum sem lauk í gær.  Margrét Alma Hannesdóttir setti nýtt met í léttingu er hún tók af sér 15,2% á 10 vikum og 45 sentimetrar fuku.  Hún var ekki bara að standa sig vel á fimm/tveir námskeiðinu heldur tók hún líka þátt í 4 vikna spinningáskoruninni og varð í öðru sæti þar.  Verðlaunin eru glæsileg, 100.000kr. í peningum og 86.000kr. árskort á Bjarg.  Guðrún Guðmundsdóttir og Ingibjörg Ásta Björnsdóttir voru báðar yfir 10% léttingu á 10 vikum og fengu 50% afslátt af næsta námskeiði.  Hópurinn sem kláraði og kom í lokamælingu, um 20 manns léttist að meðaltali um 7,8 kg. á 10 vikum, frábær hópur sem mætti stíft og tók vel á því í ræktinni og breytti um stíl í mataræði. Fyrstu 8 vikurnar hjá Nýjum lifsstíl kláruðust í gær.  Þar fór Jóninna Karlsdóttir heim með 10 mánaða kort.  Hún náði 10% léttingu og fyrir það fékk hún 6 mánaða kort.  Hún tók af sér 49 sentimetra sem er nýtt met á svona stuttum tíma og fékk 2 mánuði fyrir það og svo var hún að sjálfsögðu með hlutfallslega mesta léttingu á 8 vikum og fékk tveggja mánaða kort fyrir það.  15 voru með 100% mætingu og Þorbjörg Ólafsdóttir hreppti mætingaverðlaunin.  Þá drógum við út nokkra skemmtilega happdrættisvinninga m.a. frá Hjartalagi, Bjargi og krúttklútum Öbbu.  Takk fyrir samveruna þið sem eruð að klára og við hlökkum til að vinna áfram með þeim sem halda áfram í báðum hópum.

Breyting

Abba er að fara í burtu í 11 daga.  Hún kennir mikið og er búin að koma öllum tímunum út nema Hot yoga kl. 9:15 á fimmtudagsmorgnum.  Hann er því farinn úr tímatöflunni.  Hádegis Hot yoga tíminn á föstudögum er í uppnámi.  það er möguleiki á því að hann falli ekki niður, fylgist vel með hér á síðunni.

Þrektími

Þrektíminn kl. 16:30 er að stækka og fleiri og fleiri að átta sig á honum.  þrektímar á Bjargi eru ótrúlega fjölbreyttir og enginn tími eins.  Þreksalurinn okkar er vel búin tækjum.  Þar eru 8 líkamsræktartæki, 40 spinninghjól, 12 Gravitybekkir, fullt af pöllum, lóðum, stöngum, boltum, bjöllum og teygjum.  Við teljum svo stigann með tækjunum því hann er töluvert notaður. Núna er hægt að skipta salnum í tvennt og stundum eru tveir tímar í gangi, spinning og Gravity t.d.  Anna, Óli, Jonni, Tryggvi, Guðríður, Andrea og Tóta sjá um þrektímana á Bjargi. Þau eru troðfull af hugmyndum og láta fólk taka vel á því.

Gravity, Gravity

Hvetjum fólk til að prufa Gravity.  Opinn tími er á föstudögum kl. 16:30.  Hentar jafnt byrjendum og fólki í toppformi, vegna þess að hæðin á Gravitybekknum stjórnar álaginu.  Það er líka gott pláss á fimmtudagsmorgnum kl. 8:15 fyrir þá sem vilja vera með Öbbu og dekurkonunum.

Stella Guðrún sigurvegari í spinningáskorun

Mánaðar spinningáskorun Bjargs lauk í gær.  Góð þáttaka var og 26 manns skráðu sig sem þáttakendur og mættu flestir ótrúlega vel.  Stundum eru tveir tímar á dag og tímarnir eru kl. 6:10, 8:15, 12:10, 17:30 og 18:30 þannig að þeir sem eru í fullri vinnu höfðu ekki tök á að mæta í alla tímana.  28 tímar voru í boði og sigurvegarinn mætti í 24 tíma, missti bara af fjórum.  Við fréttum reyndar að hún hafi verið ein af þeim sem fékk ekki hjól þann 10. okt. á Dömulegum dekurdögum en þá komu rúmlega 40 manns í spinning.  Stella Guðrún Stefánsdóttir er sigurvegarinn og fær þriggja mánaða þrekkort í verðlaun og 10 skipta Boozt kort að auki.  Til hamingju Stella.  Við ætlum að afhenda verðlaunin ef þú kemur í spinning á eftir kl. 18:30.  Margrét Alma kom 20 sinnum og svo voru ansi margir með 15 skipti.

Zumba á laugardögum innifalin í tækjakorti.

Við settum inn Zumbu á laugardögum á meðan Zumbááskorunin stendur yfir.  Henni lýkur á morgun en við ætlum að halda henni inni meðan aðsóknin er góð.  Það var frítt í dans á laugardögum á Bjargi í nokkur ár eftir hrun.  Við ætlum að endurvekja það að nokkru leyti og bjóða öllum sem eiga kort í tækjasalinn frítt í Zumbu á laugardögum kl. 13.  Ólatíminn hefur fylgt tækjakortinu frá upphafi.   Þrekkortshafar geta mætt í alla opna tíma.

Breyttur tími á heitum rúllutíma

Við seinkum heita tímanum á fimmtudögum um 1 klst.  Tímarnir eru nú á mánudögum kl. 20:00 (eins og áður) og fimmtudögum kl. 19:30 Kær kveðja,  Andrea og Guðríður 

Vefjagigt

Við ætlum að bjóða ungu fólki með vefjagigt að prufa einn mánuð á Bjargi fyrir aðeins 7.100kr.  Allir tímar og tækjasalur fylgja.  Bendum hópnum sérstaklega á Hot Fit tímann kl. 16:15 á þriðjudögum og þrektímann á fimmtudögum kl. 16:30. Byrjum 21. október.  Engin skráning, bara mæta og kaupa ódýrt mánaðarkort.  Frí kennsla á æfingaáætlanir í tækjasal fylgir.

Frítt í tíma ef þú ert í bleiku!

Já, allir sem mæta í einhverju bleiku föstudag, laugardag eða sunnudag fá frítt í tíma hjá okkur.  Við höfum bætt nokkrum tímum við venjulegu tímatöfluna, skoðið þetta vel og veljið ykkur tíma.