Fréttir

Tími á laugardag, Máni kennir

Það verður gleðitími á laugardag 1.júlí kl 10:00. Máni Þorfinnsson kennari í Hreyfingu (áður Sporthúsið), ætlar að kenna skemmtilega pallarútínu og kannski verða tveir með sama pallinn eða eitthvað svoleiðis sniðugt.

Vígsla útisvæðis

Formleg opnunarhátíð útisvæðis verður föstudaginn 30.júní milli klukkan 16 og 18. Allir eru velkomnir og það verða að sjálfsögðu skemmtiatriði og ræður.

Gufubaðið að fæðast!

Það eru margir að spyrja hvað eigi að vera í litla húsinu á útisvæðinu. Þetta á að vera gufubað, nánar tiltekið eimgufubað. Ef þið skoðið myndina vel að þá þekkja sumir glerið sem komið er í hliðarnar.

Mætum öll!

Bætt stígakerfi á Akureyri Útivistarstíga og vistvænar samgöngur í forgang

Vígsla útisvæðis!

Við frestum líklega formlegri vígslu útisvæðis um viku. Veðurspáin er slæm og okkur liggur ekkert á, fylgist með það verður rosa partý og gaman föstudaginn 30. júní.

Ólatími næsta laugardag

Óli ætlar að vera með tíma kl 09:00 laugardaginn 10. júní, eitthvað erfitt og skemmtilegt.

Síðubitar í viðtal

Það voru bara 9 Síðubitar sem kláruðu síðasta 8 vikna námskeið af rúmlega 20 sem byrjuðu. En þessir 9 fá að æfa frítt næstu 8 vikur gegn því að gera samning við Öbbu. Þar setur hún fram ákveðnar kröfur um kíló og mætingu.

Síðasti laugardagurinn fyrir sumardagskrá!

Það verður Ólatími og Body Balance á laugardaginn og lokuðu Gravitytímarnir (eflaust hægt að smygla sér inn í þá, einhverjir í burtu vegna Hvítasunnu). Body Jam tíminn fellur niður. Biðjumst afsökunar á hvað margir Jam tímar hafa fallið niður. Abba fór í speglun á hné og er að reyna að vera stillt og skemma ekki það sem var gert.