Fréttir

jólayoga

Fhún lofar góðum 75 mínútna frír yogatími verður 2. janúar kl. 17:30.  Abba kennir og hún lofar góðum 75 mínútna tíma með góðum teygjum og einhverjum áskorunum.  Slökun og kertaljós.

verðlaun fyrir 10% léttingu!

Nú bjóðum við öllum að vera með í keppninni um 10% léttingu.  Áskorunin fylgir námskeiðinu Nýtt útlit, en við ætlum að opna þetta fyrir alla sem vilja vera með.  Þú færð 6 mánaða þrekkort ef þú léttist um 10% á 5 vikum, 3 mánuði ef þú nærð þessu á 10 vikum og 2 mánuði í tækjasal ef þú léttist um 10% á 15 vikum. Byrjum 13. janúar.  Abba og Óli verða á staðnum og vigta þá sem vilja vera með vikuna 6.-13. janúar. Losum okkur við jólafituna á skynsamlegan hátt og gerum hreyfingu að lifsstíl.

Opið til kl. 16 í dag!

Það er enn hægt að mæta og taka góða æfingu fyrir allt fjörið.

Spinning á Þorláksmessu og annan í jólum.

Það er engin ástæða til að safna spiki yfir jólin.  Tryggvi verður með opinn spinningtíma fyrir alla sem vilja á Þorláksmessu kl. 6:10, já bara rífa sig upp og byrja daginn snemma.  Óli verður síðan með opinn spinningtíma kl. 10:30 á annan í jólum.  Flott að mæta þá fyrir jólaboð dagsins.  Einu dagarnir sem er lokað er á aðfangadag, jóladag og nýársdag.

Dekur, dans og djamm!

Þetta er frábær blanda.  Dansa fyrir gleðina, heitir þrektímar fyrir bak og kvið, Hot yoga og Body Balance fyrir jafnvægi sálar og líkama.  Námskeið sem byrjar 13. janúar.  Abba sér um megnið af tímunum en Arna Benný ætlar að dansa og djamma í stóra salnum.  Skráning er hafiin.  Þetta er líka flott jólagjöf. Sjá nánar.

Zumba á Bjargi!

Dansinn hefur alltaf verið stór á Bjargi og eftir smá hlé er hann að fara aftur í gang eftir áramót.  Arna Benný Harðardóttir íþróttafræðingur er nýr Zumbakennari og mun byrja hér eftir 20. janúar.  Hægt verður að kaupa sig bara inní Zumbuna sem verður líklega tvisvar í viku til að byrja með.  Við erum með einn glæsilegasta danssal landsins, parketgólf, engin súla, gott svið fyrir kennarann, og svaka pláss fyrir þau sem koma og vilja sveifla sér almennilega.

Þrekkort, dekurkort, Nýtt útlit!

Það verður möguleiki á að kaupa dekurkort eftir áramót.  Heitir boltatímar, Hot yoga, Body Balance og  Zumba.  Abba mun kenna þessa tíma og Arna Benny kennir Zumbu.  Frábær kostur fyrir þau sem elska heita salinn og vilja dansa líka.  Þrekkortið er svo annað kort sem verður í boði.  Það inniheldur þrektíma kl 6:10, 8:15, hádegið og 16:30 og 18:30.  Body pumpið kemur inn og spinningtímar fylgja þessu korti og Zumba.  Óli, Anna, og Tóta munu sjá um þrek, spinning og pump, Guðríður of Andrea verða með og Arna Benny Zumbakennari.  Nýtt útlit verður svo með aðgang að öllum þessum tímum.  Þar verður áfram fræðsla, mælingar og aðhald. Tryggvi og Anný verða áfram með sína tíma og ætla að opna kortið þannig að fólk geti farið á milli spinning og þrektíma.  Hóffa, Bryndís og Abba verða áfram með Hot yoga á sömu nótum, 5 tímar vikulega og svo bætast líklega tveir við sem tilheyra dekurkorti Öbbu en verða opnir fyrir Hot yoga.  Body Balancinn verður áfram með sama sniði. Auglýsing og nánari útskýringar eru á leiðinni. Hot yoga áskorun verður í febrúar.

Kort í jólagjöf!

Hvernig væri að koma á óvart og hefa mánaðarkort í tækjasalinn í jólagjöf?  Aðeins 6900kr. tilvalið fyrir t.d. unglinginn, kærustuna, ömmu eða pabba.  10 tíma kort í hot yoga fyrir 10000kr. er líka góður kostur eða Body Balance kort fyrir 15000kr, mæting einu sinni í viku og gildir fram á vorið.