Fréttir

Body Balance

Við erum búin að færa Body Balance tímana niður í kjallara í nýuppgerðan sal sem tekur um 30 manns.  Þess vegna viljum við sjá fleiri mæta í Body Balance tímana.  Ef þú fílar Hot Yoga þá er Balancinn eitthvað fyrir þig.  Tímarnir eru á miðvikudögum kl. 17:20 og 10:30 á laugardögum.

Hægt að koma inní námskeið

Það er alltaf hægt að koma inní lífsstílsnámskeiðið og Gravity Bolta námskeiðið.  Á þessum námskeiðum er pláss.  Nýtt útlit og Dekurnámskeiðið eru frekar full en kannski pláss fyrir eina til tvær í hvorum hóp.

Hádegisyoga

Abba er búin að vera að kenna Hot yoga í hádeginu á föstudögum.  Það er frekar léleg mæting og flestir velja þrektímann framyfir Hot yogað. Síðasti tíminn verður því á morgun kl. 12:10.  Bendum á alla hina tímana og t.d. eru enn tveir tímar í boði á fimmtudögum, kl. 6:10 og 17:20.  Á sunnudögum er öruggast að vera búin að sækja sér númer 10 mínútum fyrir tímann til að vera öruggur með pláss.  Núna er Bryndís yogakennari kominn aftur eftir um tveggja mánaða fjarveru vegna puttabrots.  Hóffa kennir í dag og er að koma tilbaka eftir veikindi.

Engin Zumba í dag

Arna Benný er á leiðinni norður þannig að Zumban fellur niður í dag.

Ólatími, Body Balance og Zumba á morgun

Það er ekkert lát á vinsældum Ólatímans sem er kl. 9:05 á laugardagsmorgnum.  Óli kennir oftast sjálfur og getur endalaust komið á óvart með frábærum þrektímum.  Body Balance tímarnir hafa líka verið endalaust vinsælir síðan Abba byrjaði að kenna þá fyrir um 15 árum.  Fallegir, krefjandi tímar sem eru skemmtileg blanda af óhefðbundnu yoga, Pilates og Tai Chi.  Flott tónlist er eitt af aðalsmerkjum þessara tíma og Grammy verðlaunahafinn Sam Smith á einmitt tvö lög núna í Body Balance.  Zumban hjá Þórunni er síðan opinn fyrir alla sem eiga kort á Bjargi, tækja-eða þrekkort.  Nýjustu og flottustu dansarnir við dúndrandi skemmtilega músík.

Innifalið í tækjakorti

Ólatíminn og Zumban á laugardögum fylgja tækjasalskortinu.  Skemmtileg tibreyting fyrir korthafa að hvila sig á tækjasalnum á laugarögum og fara í alvöru þrektíma eða dansa brjálaða og skemmtilega Zumbu.

Body Balance

Það er Body Balance tími í fyrramálið kl. 10:30. Tímarnir eru í nýuppgerðum sal í kjallaranum. Nóg pláss og frábært prógram. Flott tónlist og reynslumiklir kennarar.

Body Balance

Það er Body Balance tími í fyrramálið kl. 10:30. Tímarnir eru í nýuppgerðum sal í kjallaranum. Nóg pláss og frábært prógram. Flott tónlist og reynslumiklir kennarar.

Fullt á rúllunámskeiðinu

Það er troðfullt á heita rúllunámskeiðinu hjá Guðríði og Andreu.  Góður hópur er á ketilbjöllunámskeiðinu hjá Tryggva og svo er alltaf að fjölga í Gravity/bilta námskeiðinu og lífsstílnum.  það er hægt að koma inní þau námskeið hvenær sem er og þau verða fram á vorið, enda í kringum 10. maí.

Zumba fellur niður tvo mánudaga.

Arna Benný er í hálfsmánaðar fríi og því fellur Zumba niður næstu tvo mánudaga.  Þórunn mun kenna miðvikudags tímana og áfram á lsugardögum.