Fréttir

Áramótagleði

Erum byrjuð að undirbúa áramótatíma Bjargs.  Núna verður happdrætti í lok tímans fyrir alla sem lifa af 2 klst.  Hvetjum ykkur til að mæta í skrautlegum klæðnaði.  kannski bara með jólabindið eða með eitthvað á höfðinu eða taka þetta alla leið með búningi uppúr og niðrúr.

Þrektími og Hot Yoga í dag

Vonandi höfðu allir það gott um jólin og eru tilbúnir að byrja aftur.  Það verður stór þrektími hjá Óla kl. 17:30 í dag og Hot Yoga á sama tíma í heita salnum á neðri hæðinni, um þann tíma sér gestakennarinn Guðmundur sem hefur áður komið til okkar sem gestakennari.

Þorláksmessutími

Bryndís og Guðríður ætla að vera með þrektíma fyrir alla áhugasama kl 11 á þorláksmessu.  Gott að hreyfa sig fyrir skötuátið. Anna verður líka með Body Pump í hádeginu á fimmtudaginn.  Athugið að Zumbatíminn færist fram á fimmtudaginn og verður kl 16:30.

Einn spinningtími á morgun

Það verður einn spinningtími á morgun, fyrri tímunn fellur niður.  Body Fit á fimmtudagsmorgninum er líka úti.

6x6x6 áskorun fyrir karla í jólagjöf

Stelpur! Við erum með jólagjöfina handa honum.  6 vikna námskeið þar sem karlinn fær að æfa 6x í viku, komast í toppform og léttast ef hann þarf, liðkast og stinnast.  Gjafakortin okkar eru besta jólagjöfun.

Notum jólafríið vel

Undanfarin ár hafa námsmenn í jólafríi á Akureyri fengið að æfa frítt hjá okkur milli jóla og nýárs.  Við höfum ekki auglýst þetta en gerum það nú.  Skoðið dagskrána yfir jólin, fullt af spennandi tímum og oft er nóg að koma bara í pottinn!

Vigtun í dag og á morgun!

Allir með, stökkva á vigtina og við skráum töluna og svo aftur eftir áramót.  Sesið allt um verðlaunin og fyrirkomulagið hér.

Body Pump í hádeginu

Athugið að það urðu smá mistök.  Tókum óvart út pumpið í hádeginu en það átti að vera seinniparts pumpið.  Anna kemur á eftir og kennir Body Pump í hádeginu, síðast var troðfullt.  Body Pump tíminn 17:30 fellur niður.

Frábáær árangur hjá lífsstílnum

Það var sett sögulegt met í sögu lífsstílsnámskeiðanna þegar Kristrún Ósk Eggertsdóttir náði 22% léttingu á 14 vikna námskeiði.  Hún náði 10% léttingu á 7 vikum tvisvar sinnum og er því búin að vinna sér inn um tvö árskort með sínum glæsilega árangri.  6 náðu 10% léttingu á 14 vikum og sentimetrarnir sem fuku voru ófáir.  Margar voru með 100% mætingu og við drógum út nöfn þriggja sem fengu tveggja mánaða kort í verðlaun.  Einstaklega glæsilegur árangur hjá stelpunum og þær fóru skælbrosandi heim.

Styttri barnagæsla

Þegar fólkinu og tímunum fækkar þá koma líka færri börn í gæsluna.  Við munum stytta hana um klukkutíma bæði kvölds og morgna í næstu viku, frá og með 12. desember ef notkunin er lítil.