Fréttir

Body Jam í Les Mills viku

Því miður duttu allir Body Jam tímarnir út í auglýsingunni í N4 um opnu Les Mills vikuna. Það eru 3 tímar á viku í Body Jam og þeir eru að sjálfsögðu opnir fyrir alla sem vilja prófa. Í hádeginu á þriðjudögum, kl 20:30 á miðvikudögum

Vinsældalistinn 1985 í þemaspinning

Óli ætlar að spila af vinsældalistanum frá 1985 í þemaspinning á morgun kl 17:15. Fullt af skemmtilegum lögum með góðum sveitum frá þessum tíma.

LesMills vika

Við verðum með frítt í alla Les Mills tíma frá fimmtudegi til miðvikudags. Opið fyrir alla sem vilja prufa Body Pump, Step eða annað og eiga ekki kort á Bjargi. Velkomið að fara í heita potta og gufubað á eftir.

Frumflutningur á Body Combat á föstudag

Combat kennararnir ætla að frumflytja nýtt Combat á föstudag, 26. mars kl 17:30. Mætið endilega í bardagafíling með griplur og hárbönd eins og Rocky!! Þessi tími lendir inní Les Mills vikunni svo endilega takið með ykkur gesti.

Kynningartími í Body Attack á fimmtudag

Inga Steinlaug verður með annan kynningartíma í Body Attack á fimmtudag 25. mars kl 18:30. Þetta er hluti af Les Mills vikunni og því frítt inn fyrir alla sem eru 14 ára og eldri. Skemmtilegur þoltími.

Páskar á Bjargi

Það verður opið á Pálmasunnudag eins og á venjulegum sunnudegi en súperspinning fellur niður. Lokað verður á Skírdag, Föstudaginn langa og á Páskadag. Laugardagurinn fyrir páska er venjulegur með öllum tímum. Það verður opið á annan í páskum frá kl 10-13.

Góður Body Balance

Við hvetjum alla til að prufa Body Balance. Ótrúlega góðar æfingar sem henta öllum, fólki í góðu formi og byrjendum. Núna er öflugt sverðþema í Tai Chi, 8 mínútna samfelldar læra og rassæfingar, erfiðar og skemmtilegar kviðæfingar.

Fyrirlestur hjá Davíð

Davíð Kristinsson næringarþetrapisti og einkaþjálfari verður með fyrirlestur um hollan lífsstíl hér á Bjargi kl 20 fimmtudagskvöldið 18. mars. Fyrirlesturinn er hugsaður fyrir alla sem eru á námskeiðum á Bjargi

Matreiðslukennsla á laugardag

Abba verður með matreiðslukennslu á laugardag 20. mars kl 13 í kjallaranum. Kennslan er hugsuð fyrir alla sem eru á námskeiðum á Bjargi (Lífsstíll, Gravity, CrossFit, mömmur/meðganga).

Breyting á CrossFit

Það verða 6 framhaldstímar í boði í CrossFit. 4 morgna kl 06:15, kl 16:15 á föstudögum og 10:30 á laugardögum. Hvetjum alla sem lokið hafa grunnnámskeiði að vera dugleg og mæta í framhaldstímana.