Fréttir

Eva að hætta.

Danstímarnir eru að fara í frí vonandi bara tímabundið.  Eva mun kenna út þessa viku og fara svo í frí.  Við munum gera okkar besta að finna nýjan Zumbakennara, fylgist með.  Þá er bara komið að því að prufa aðra tíma, alltaf gott að breyta til og þá tekur líkaminn stökk og styrkist og breytist.

1. maí

Það verður lokað á Bjargi 1. maí.  Allir í skrúðgöngu!

Hot Yoga kl 18:00

Mánudagstíminn í Hot Yoga sem var kl 18:30, verður kl 18:00 framvegis.

Lokað á sumardaginn fyrsta!

Það verður lokað hjá okkur næsta fimmtudag, sumardaginn fyrsta.  Allir fara út og leika sér í góða veðrinu.

Áfram strákar

Nýja námskeiðið hjá konunum er að fyllast en það bólar varla á körlunum.  Hvernig væri að breyta til og skella sér á námskeið, þurfa að mæta 4x í viku, fá aðhald og kennslu varðandi mat.  Verða síðan sáttari við sig í framhaldinu og fara inní sumarið skælbrosandi og fit?  Hljómar vel, 8 vikur fyrir 15000kr er líka gjafverð.

Fækkum tímum

Body Fit á mánudögum er hætt.  Spinning kl 18:30

Body Step

Body Steppið er hætt.  Við höldum eitthvað áfram með Body Fit tímann á mánudögum og síðasti spinningtíminn kl 18:30  á þriðjudögum verður á morgun.

Spennandi námskeið fyrir karla og konur!

22. apríl byrja Abba og Óli með tvö námskeið.  4 vikur, æfingar 3-4x í viku, og 4 vikur fríar.  Innifalið er vikuleg fræðsla í netpósti, mælingar og vigtun, þolpróf, aðgangur að öllum tímum, tækjasal og glæsilegu útisvæði með heitum pottum og gufubaði og frí barnagæsla.  Konurnar eru kl 16:30 og karlarnir kl 17:30. Umsjón hafa Óli og Abba.  Hann sér um prógröm og kennslu í tækjasal, spinning og þrek, hún sér um mælingar, fræðslu, heita þrektíma, Hot Yoga og Body Balance.  Skráning hefst 16. apríl.  Þetta er námskeið sem kemur ykkur í form fyrir sumarið, frábær blanda af tímum og tækjasal.

Spinning fellur niður

Vegna masterclass tímans í Zumbu í dag kl 18:30 fellum við niður spinningtímann.  Von er á miklum fjölda og þarf hópurinn báða salina.

Opið fyrir alla sem vilja prufa!

Nú eru námskeiðin að klárast og 1-4 vikur eftir.  Einhverra hluta vegna fækkar alltaf þegar dregur að lokum námskeiða.  Því ætlum við að opna suma tímana til að leyfa öðrum korthöfum á Bjargi að prufa.  Gravity vefjagigt kl 18:30 á mánudögum og miðvikudögum, þar er pláss fyrir um 8 manns aukalega fram til 10. maí.  Gravity Extra kl 16:30 á þriðjudögum og fimmtudögum er fyrir þau sem eru 30 kg of þung eða meira.  Nýtt líf kl 9:30 4x í viku, 2x þrek á mánudögum og miðvikudögum, heitur tími með bolta og fleira á fimmtudögum, Gravity á föstudögum.  Það er líka pláss fyrir nokkra að prufa Nýja útlitið kl 16:30 en þar er heitur tími á þriðjudögum og fimmtudögum, en Gravity á mánudögum og miðvikudögum.  Nýr lífsstíll er svo kl 18:30 á mánudögum og miðvikudögum og 10:30 á laugardögum, góðir þrektímar. Við ætlumst ekki til að fólk komi í alla tímana heldur prufi einn og einn ef áhugi er fyrir.