Fréttir

CrossFit

Óli er farinn í frí frá CrossFit tímanum á mánudagsmorgnum. Nýr Gravitytími er kominn inn kl 16:30 á miðvikudögum, Abba og Hóffa kenna. 

Akureyrarhlaupið

Hvetjum alla til að taka þátt í Akureyrarhlaupinu 5. júlí.  10 km hlaupið er Íslandsmeistaramót í leiðinni og því mikilvægt að þátttaka verði góð og umgjörðin flott.  Kári Steinn er væntanlegur og stefnir á Íslandsmet sem er frá 1983.  Rannveig, Sonja, Sigga og allar hinar stelpurnar verða með og allir strákarnir.  Það er aldursflokkakeppni, 15 ára og yngri í 5 og 10 km, 16-39 og 40 + í 5, 10 og 21 km.  Skráið ykkur sem fyrst inná hlaup.is.  Glæsileg verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin og fullt af útdráttarvinningum.

Einn Body Fit boltatími eftir

Síðasti Body Fit tíminn í sumar verður á fimmtudag kl 8:15.  Við ætlum að halda Hot Yoga tímanum á þriðjudagsmorgnum eitthvað áfram, 2-3 tíma í viðbót.  Abba, Bryndís og Hóffa eru að fara saman í gönguferð um miðjan júní og þá verður enginn til að kenna.  Annars er bærileg mæting í aðra tíma miðað við veður og árstíma.

Opinn Gravitytími

Vaxtamótunarnámskeiðin Nýtt útlit klárast á morgun.  Þá verður pláss fyrir opinn Gravitytíma á miðvikudögum kl 16:30.  Fyrsti tíminn verður ekki næsta miðvikudag heldur hinn.  Munið að skráning í opna Gravitytíma hefst á laugardögum, þannig að það verður skráð í nýja tímann næsta laugardag.  Abba og Hóffa munu kenna þessa tíma að mestu og gera allt sem þeim dettur í hug, frekar erfiðir tímar en henta öllum því þú stillir álagið sjálfur.

Hádegistímar á Bjargi

Fáar líkamsræktarstöðvar geta boðið uppá jafn skemmtilega aðstöðu og Bjarg á sumrin.  Útitímarnir á pallinum eru einstakir.  Hádegistíminn er úti alltaf þegar veður leyfir, einnig Zumban á laugardögum.  Tímarnir í hádeginu eru fjölbreyttir þrektímar og sjá 5 kennarar um þessa tíma í sumar til að tryggja fjölbreytnina. 

Hot Yoga

Erum enn með tvo Hot Yoga tíma í gangi á þriðjudögum.  Á morgnana kl 8:15 og seinni partinn kl 17:30.  Nú eru tímarnir ekki troðfullir og því tilvalið fyrir þá sem ekki hafa lagt í að prufa þessa frábæru tíma að gera það. 

Frumflutningur á Les Mills kerfum

Abba frumflutti nýjan Body Balance áðan.  Sumarlegur og hressilegur Balance með fullt af áskorunum.  Anna er búin að frumflytja nýtt Body Pump og CXWORX.  Þannig að nýju kerfin eru komin á fullt.  Hvetjum fólk til að prufa pumpið, styrktarþjálfun í hæsta gæðaflokki og ef þú hefur ekki prófað CXWORX core tímannn þá áttu mikið eftir.  30 mínútur af ótrúlegum æfingum fyrir miðjuna.

Síðasti Ólatíminn

Síðasti Ólatíminn var í morgunn.  Barnagæslan mun líka falla niður á laugardögum í sumar.  Gæsluherbergið er opið fyrir eldri krakka.  Það verður einn Body Fit tími í viðbót á fimmtudagsmorgni.  Fylgist vel með því etv. eru fleiri tímar á útleið, enda veðrið gott og allir að fara í frí.

Sumarfjör fyrir unglinga

Tryggvi og Birna verða með unglinganámskeið á mánudögum og miðvikudögum kl 13:30 og fimmtudögum kl 12:30.  Námskeiðið er fyrir 12 ára og eldri og verður farið í íþróttaleiki, hjólatúra, krakka CrossFit og fleira.  Tímarnir verða úti og inni  og fyrsti tíminn er 11. júní, verð 12000kr.

12 sveitir í maraþonboðhlaupinu

Hádegisvalkyrjur Bjargs sigruðu sveitikeppnina þar sem konur voru í meirihluta.  Sveitina skipuðu Rannveig, Sigríður, Sonja of Hulda Elma.  Tvær strákasveitir náðu að vera á undan þeim.  CrossFit stelpurnar skelltu í sveit og stóðu sig vel, kölluðu sveitina Ólán.  Meistaraliðið kom svo úr hlaupahópnum Bjargvættum og Birgitta og Bryndís kennarar hér söfnuðu í lið sem náði sjöunda sæti, glæsilegt.