Fréttir

Hot Yoga

Næsti sunnudagur er Pálmasunnudagur og því ekki von á mörgum í ræktina vegna ferminga og ferðalaga.  Við ætlum því að fella Hot Yoga niður næsta sunnudag.  Lokað verður á Skírdag, föstudaginn langa og páskadag.  Tækjasalur verður opinn á annan í páskum frá 10-13.  Opið verður eins og vanalega á laugardeginum en allir tímar falla niður og einn stór þrektími hjá Tryggva kemur í staðinn og verður hann kl 10:00.  Miðvikudaginn fyrir páska falla allir tímar niður sem eru eftir hádegi.  Höldum venjulegri dagskrá fyrir hádegi.

Opið fyrir alla í Zumbu á laugardögum

Það hafa verið tveir danstímar í röð á laugardögum, Zumba kl 12 og Body Jam kl 13.  Núna ætlum við að sameina þennan tíma í einn.  Eva mun dansa mest Zumbu en skjóta inn sínum uppáhaldsdönsum úr Body Jamminu.  Tíminn er opinn fyrir alla, líka þá sem eiga ekki kort á Bjargi.

Góð aðsókn í helgartímana!

Þrátt fyrir góða veðrið komu tæplega 40 manns í Ólatímann á laugardag og Body Balancetíminn er alltaf vel fullur.  Sunnudagstíminn hjá Tryggva hefur slegið í gegn og hentar öllum.  Spinning í 45 mínútur og styrktarhringur í 30 mínútur á eftir.  30 mínúna spinnintímarnir á mánudögum og miðvikudögum hafa virkað vel og CXWORX core tíminn á eftir í 30 mín.  Frábær blanda sem við munum örugglega halda áfram með.

Body Combat

Anna frumflutti nýtt Combat á miðvikudag.  Frábært og öflugt kerfi sem allir þurfa að prufa.  Bardagaþema, fullt af góðum æfingum og mikið þol. Kennt á miðvikudögm kl 17:15.

Breytum eftir páska!

Við munum endurskoða tímatöfluna eftir páska og fækka tímum eitthvað.  Flestir tímar eru vel sóttir en við viljum helst sjá vel yfir 10 manns í tímum til að halda þeim inni.  Námskeiðum fer líka fækkandi með hækkandi sól.  Munum halda áfram með lífsstil og Gravity eftir páska.

Fyrirlestur á morgun

Við mælum með fyrirlestri Ingu Lóu hér á Bjargi á morgun kl 20:00.  Hún segir okkur hvað þarf að varast varðandi aukaefni í mat.  Msg, aspartam, glúten og fleira.  1000kr fyrir korthafa á Bjargi.

CXWORX

Abba og Anna ætla að frumflytja nýtt CXWORX í hádeginu á morgun.  Æðislega öflugt og skemmtilegt kerfi fyrir kjarna líkamans.  Áskoranir um að klára erfiðar æfingar en líka auðveldari möguleikar.  Þú finnur mun eftir tvo til 3 tíma.  Happdrætti í lok tímans.

Body Pump og Body Step

Búið er að frumflytja nýtt Body Pump og Body Step.  Hvetjum alla til að prufa þessa tíma.  Pumpið er vinsælasti hóptimi veraldar og kenndur út um allan heim.  Sama má segja um steppið.  Það er pallatími með áherslu á styrk og þol.  Einföld spor en fullt af flottum æfingum og áskorunum.  Ef þú vilt stynnari rass, sterkan kjarna, flott læri og meira þol þá er Body Step tími fyrir þig.

Hot Yoga á sunnudögum

Það eru of fáir að mæta í Hot Yoga á sunnudögum miðað við kostnað og umstang.  Við ætlum samt að gefa tímanum séns og færa hann til um klukkutíma.  Tíminn næsta sunnudag verður því kl 10:05 og kennarinn lætur vita í upphafi tímans hvort hann verður í 60 mínútur eða lengri.  Klukkutíma tímarnir virðast vera vinsælastir þó kennurunum þyki 90 mínúturnar bestar.  Það þarf ekki að skrá sig í þessa tíma, bara mæta.  Allir sem æfa íþróttir á Akureyri innan IBA geta komið í þennan tíma og borga aðeins 500kr. 

Frábær árangur hjá 6x6x6 áskorun fyrir karla og konur.

Karlarnir kláruðu 6 vikna áskorunina í morgun og konurnar í síðustu viku.  Þetta er áskorun fyrir fólk sem treystir sér til að æfa 6x í viku, komast í gott form og losna við síðustu 4-6 kílóin.  Meðallétting á báðum námskeiðunum var um 4 kíló en sentimetrarnir fuku og þolið, styrkurinn og brosið hafði aukist.  Annað námskeið hófst hjá stelpunum á þriðjudag og nýtt karlanámskeið fer af stað eftir rúma viku.