Fréttir

Zumba og Body Balance

Zumbatíminn á mánudag 31. ágúst fellur niður vegna veikinda.  Reiknum með að fimmtudagstíminn verði inni.  Það verður ekki Zumba hjá okkur á laugardögum í vetur.  Bendum á Body Balance tímana kl. 10:30 í staðinn.  Þar eru gerðar æfingar í takt við tónlist í 55 mínútur.  Allir eru berfættir og æfingarnar koma úr Tai Chi og yoga.  Einn reyndasti Body Balance kennari landsins kennir tímana, Hólmfríður Jóhannsdóttir.  Þessi tími ásamt Ólatímanum á laugardögum fylgja tækjasalskortinu í vetur.

Nýtt útlit 8:15

Það er fullt á námskeiðið Nýtt útlit kl. 16:30.  Bendum á að hægt er að skrá sig kl. 8:15 á þriðjudögum og fimmtudögum.  Það eru aukatímar fyrir þær sem eru í vaktavinnu en skráðar á seinna námskeiðið.  Einnig er fullt á Dekurnámskeiðið kl. 16:30 en við bendum líka á þessa tíma kl 8:15 fyrir þær sem geta mætt svo snemma.

Þrektími og Gravity saman í dag.

Þrektíminn kl. 17:30 fellur niður í dag. Bendum á Gravitytímann kl. 16:30 og 17:30 í dag. Nóg pláss og Óli kennir.

Frítt inn í 3 daga.

Við verðum með opna daga 31. ágúst, 1. og 2. september.  Þessa daga geta allir sem eru 14 ára og eldri æft frítt og prufað hina og þessa tíma.  Ný tímatafla tekur við 31. ágúst.  Hvetjum alla til að koma, skoða og æfa.  Bjarg er öðruvísi stöð, þægileg og heimilisleg.  Tækjasalurinn er vel búin og viðbótin við hann er öll efri hæðin með Gravitybekkjum, tækjum, boltum og hjólum.  Hot yoga salurinn er líka opinn allan daginn fyrir þau sem vilja æfa og teygja inní volgum sal og rökkri.  Óli mun halda áfram að setja æfingu dagsins á töflu í tækjasalnum, virkar eins og frí einkaþjálfun allan veturinn.  Hann er oftast við og leiðbeinir frítt.

Opið lengur í vetur.

Frá 31. ágúst verður opið frá 6 til 23 4x í viku.  Á föstudögum verður opið til kl 21, 9 til 16 á laugardögum og 10 til 14 á sunnudögum.

Skráning hafin.

Við erum byrjuð að skrá á öll námskeið haustsins.  Nýjan lífsstíl sem verður á eðal tíma, kl. 17:30 á mánudögum og fimmtudögum, laugardagstíminn er kl. 11:30, byrjum 3. september.  Nýtt útlit eru heitir bolta og þrektímar, Dekrið er fyrir 50 ára og eldri og byrjendur  og Gravity/bolti fyrir þær sem vinna lengi og vilja góða þrektíma í Gravitybekkjunum og með stóru og litlu boltana.

Aukatími í Gravity

Vegna lokunar á frídegi verslunarmanna, mánudaginn 3. ágúst, tökum við aukatíma fyrir alla sem eru á Gravitynámskeiðunum á þriðjudeginum 4. ágúst kl. 16:30 og 17:30.  Mætið í þann tíma sem hentar betur.