Fréttir

Breyttur opnunartími frá 3. júní.

Frá og með mánudeginum styttist opnunartíminn.  Opið verður frá 6-20 á mánudögum og miðvikudögum.  Frá 6-14 og 16 -20 á þriðjudögum og fimmtudögum.  Frá 6-14 á föstudögum og 9-14 á laugardögum.  Lokað á sunnudögum.  Barnagæslan er mjög lítið notuð og verður því í eina viku í viðbót, hættir eftir fyrstu vikuna í júní.  Laugardagsgæslan verður á meðan Ólatíminn er inni, allavega út júní.

Frumflutningur á Body Balance

Hóffa og Abba munu frumflytja Body Balance númer 61 kl 17:30 í dag.  Falleg tónlist, flæði í Tai Chi og jógastöðum og krefjandi kvið og bakæfingar úr Pilates.  Slökun í lok tímans.  Við kennum sama prógrammið í ca 3 mánuði, þannig að færnin verður smátt og smátt meiri, tæknin betri og árangurinn alvöru.

Skólakort

Eins og undanfarin ár erum við með tilboð til nemenda og starfsfólks allra framhaldsskóla á Akureyri.  Verulegur afsláttur af árskorti ef keypt er fyrir miðjan júní.

Allt að gerast

Ef þið hafið ekki séð auglýsinguna í N4 dagskránni í dag þá er hún hér á síðunni til hægri " Haustið 2013".Þar er hægt að lesa um breytingarnar sem eru á döfinni.  Ótrúlega spennandi og í kringum miðjan júní munu þjálfararnir sem hafa þegar leigt sali hjá okkur kynna sína tíma og námskeið og byrja að skrá, fyrstir koma fyrstir fá.  Við byrjum að selja ódýru kortin 3. júní, þriggja mánaða forskot og hægt að mæta í allt í sumar. Ef eitthvað er óljóst þá endilega stoppið Öbbu og Óla og spyrjið eða sendið okkur spurningar í pósti.

Breyting á tímatöflu

Gravitytíminn á mánudögum færist upp um klukkutíma og verður framvegis kl. 16:30.  Heiti bolta/þrektíminn sem er að byrja núna á fimmtudaginn færist í næstu viku yfir á þriðjudaga.  Nýji fomrúllu og teygjutíminn byrjar svo næsta mánudag kl 17:30. Þannig að það eru tímar kl 16:30 4x í viku og 8 tímar kl 17:15 eða 17:30.

Bætt þjónusta!

Það verður frí kennsla í tækjasal í sumar og svo áfram.  Núna eru leiðbeinendur í salnum á mánudögum kl. 16-18.  Kl 8-10 á þriðjudögum, kl 6-8 og 10-14 á fimmtudögum.  Abba og Óli sjá um að kenna á prógrömmin sem þar eru og svara spurningum og aðstoða fólk fyrstu skrefin í ræktinni eða hjálpa til við að finna hvað hentar og virkar fyrir hvern og einn.

Ólatími á morgun

Einn vinsælasti tíminn okkar er Ólatími.  Opinn fyrir alla og ekki hika við að prufa, komdu sjálfum þér á óvart og kláraðu erfiðan þrektíma á laugardagsmorgni kl 9:05.

Einkaþjálfun, tilboð!

Við ætlum að gera vel við alla einkaþjálfara í sumar og fram að áramótum. 

Lokað um Hvítasunnu

Það er lokað sunnudag og mánudag 19. og 20. maí vegna Hvítasunnunnar. Opið eins og venjulega á laugardag og Ólatími á sínum stað.

Tímar kl 16:30

Heiti tíminn á mánudögum og þrektíminn á miðvikudögum verða framvegis kl 16:30 en ekki 16:15 eins og var áður.