Fréttir

Síðasti Ólatíminn

Ólatíminn hefur stundum verið út júní eins og núna en síðasti tíminn var í morgun.  Andrea og Guðríður eru líka komnar í frí með heita rúllutímann.  Gravitytímarnir tveir verða í næstu viku og svo sjáum við til með framhaldið.

Framkvæmdir á fullu

Nú er búið að slípa og lakka gólfið í Hot Yoga salnum og parketið kom á spinningsalinn í gær. Búið að mála og setja upp spegla, ótrúlega flottur salur og nóg af tímum til leigu fyrir alla næsta vetur.

Heiti tíminn hættur

Það er erfitt að keppa við góða veðrið og því er heiti þrektíminn kl 16:30 á þriðjudögum hættur.

Gravity

Við erum með tvo opna Gravity tíma í sumartöflunni.  Hvetjum alla til að prufa þessa tíma, ótrúlega öflugir og koma alltaf jafnskemmtilega á óvart.  Það er bara pláss fyrir 12 svo það þarf að skrá sig í síma 4627111.

Skráning fyrir haustið

Sumir þjálfararnir eru búnir að auglýsa sína tíma fyrir haustið 2013 og langt komnir með skráningu í þá.  Við munum fljótlega setja inn allt sem verður í boði næsta haust og verðskrá með.

17. júní

Það er að sjálfsögðu lokað 17. júní.

Hitt og þetta gefins, annað selst ódýrt.

Við erum að gefa leikföngin úr barnagæslunni þessa dagana.  Eftir langa og góða þjónustu við barnafólk leggjum við hana niður.  Einnig eigum við slatta af flottum pokum utanym Yogadýnur er einhver vill.  Gólfmotturnar, eða dýnugólfið úr salnum er til sölu.  Hver motta kostar 200kr.  Einnig eru hlaupabretti og ein 9 líkamsræktartæki til sölu vegna breytinganna.

Viðgerð

Hot Yoga tíminn á morgun kl 17:30 fellur niður vegna viðgerðar á gólfi salarins.  Það er verið að taka það í gegn og verður vonandi klárt á þriðjudag í næstu viku.  Breytingar á barnasal í spinningsal eru langt komnar.

Útitímar

Það er líklega engin stöð á Íslandi með eins flotta útiaðstöðu og Bjarg.  Núna erum við með suma tíma úti á pallinum góða.  Möguleiki á stuttum hlaupahringjum á stígum í kring til að krydda þrektímana og tónlist til að halda okkur við efnið.  Óvissuhóparnir fá líka að vera á pallinum og jamma og dansa.  Vonum að sumarið verði svona gott áfram.

Heitur þrektími

Heiti þrektíminn er kominn yfir á þriðjudaga kl 16:30.  Abba kennir og notar boltana, teygjur, lóð og rúllur.