Fréttir

Námskeið að klárast - æfa til jóla

Nú eru námskeiðin hjá okkur að klárast og mjög flottur árangur hjá hópunum okkar :) Allir sem eru að klára námskeiðin æfa frítt til jóla og því um að gera að nýta tækjasalinn og opnu tímana í desember.

Seinni hluti á 90´s spinning kl 17:30

Síðastliðinn þriðjudag var troðfullur salur þegar tekinn var fyrri hluti 90´s þema 90-94. Nú er komið að síðari hlutanum 95-99 og verður stuðið engu minna :)

Vinavika og jólakort frá Bjargi

Vinavika verður á Bjargi frá laugardeginum 26.desember til föstudagsins 2.desember. Allir korthafar mega bjóða með sér vinum í tíma og tækjasal þessa daga. Við hefjum einnig sölu á jólakorti 28.nóvember en kortið gildir út desember. Tækjasalskortið er á 6.900 krónur og þrekkortið á 9.900

90´s þema í spinning á þriðjudaginn kl 17:30

Það verður 90´s þema í spinning kl 17:30 á þriðjudaginn og mun Tryggvi spila lög frá þessu gullaldartímabili af fullum styrk :)

Nýr hóptímaþjálfari

Páll Hólm er nýr hóptímakennari hjá okkur. Páll er ÍAK-einkaþjálfari og mikill íþróttamaður. 

Bjarg á snapchat

Við erum á snappinu - bættu okkur við á bjarg_gym

Einkaþjálfun – nú er tíminn!

Framundan er dásamlegur tími en um leið sá tími sem við viljum gleyma að huga að heilsunni og látum hana sitja á hakanum. Þá er tilvalið að nýta sér okkar frábæru einkaþjálfara.

Góð mæting í tíma

Það er góð mæting í hóptíma og tækjasal hjá okkur og greinilegt að margir eru að huga vel að heilsunni :)