Fréttir

þrekmeistarinn

Þrekmeistarinn var í gær og okkar fólk náði ótrúlegum árangri. Sólrún gerði sér lítið fyrir og náði öðru sæti í opnum flokki kvenna og var 2 sekúndur á eftir sigurvegaranum.

Gísli og Guðfinna mætt

Gísli er kominn heim úr 3 vikna æfingaferð með frjálsíþróttafólki til Ameríku. Gott að fá hann aftur í salinn.

Lífsstíll

Lífsstílsnámskeiðin klárast 11. maí og karlapúlið 12. maí. Okkar tilboð til ykkar er síðan að þið fáið að æfa frítt út maímánuð.

Ólafur Sæmundsson, nýtt slagorð, markmið og stefna.

Þriðjudaginn 3. maí verður heilsudagur á Bjargi. Ólafur Sæmundsson næringarfræðingur kemur og verður með fyrirlestur og svarar spurningum um mataræði og allt sem því viðkemur.

Gunni, langflottastur

Einn okkar dyggasti viðskiptavinur í gegnum árin á afmæli í dag, Gunnar heitir hann og er Ragnars.

Öldungablak

Það var mikið um að vera um helgina hér á Akureyri. Andrésar Andar leikar og Íslandsmeistaramót öldunga í blaki. Slatti af okkar fólki var að keppa í blakinu og eitt liðið kenndi sig við Bjarg.

Body Jam

Abba og Anna eru á leiðinni á Body Jam námskeið um helgina.

Myndir

Höfum sett inn myndir á alla liði undir þjónusta. Stefnan er að skipta oft um myndir. Allt eru þetta myndir úr stöðinni og af fólki sem æfir hér, kanski er mynd af þér?

Þrekmeistarinn 30. apríl

Nú fer að líða að Þrekmeistarakeppninni og við erum löngu búin að ýta við fólki og auglýsa eftir einhverjum í lið. Við stefnum á að vera allavega með tvö lið og helst fleiri.

Heimsmeistari

Haraldur Ólafsson gerði sér lítið fyrir og varð heimsmeistari meðal atvinnumanna í uppstoppun.