Breyting á sumaropnun

Það er afspyrnu rólegt hér yfir sumarið og þá sérstaklega yfir miðjan daginn, á föstudagseftirmiðdögum og á sunnudögum.  Því er á döfinni að reyna að þjappa fólki betur saman á þeim tíma sem opið er.  Í júní og júlí er ætlunin að opna kl 8:00 á þriðjudögum og fimmtudögum og hafa opið til kl 14:00.  Opna svo aftur kl 16 til 19.  Mánudagar og miðvikudagar verða eins og hefur verið frá 6 til 19.  Föstudagar yrðu þá frá 6-14:00 og etv. lokað á sunnudögum.  Fólk er meira og minna í burtu allt sumarið í sumarfríum sem er bara eðlilegt.