200 þúsund í verðlaun

Halla í græna bolnum í planka í lokatímanum
Halla í græna bolnum í planka í lokatímanum
Verðmæti Gjafakortanna sem stelpurnar í lífsstílnum fengu núna á mánudaginn er um 200 þúsund.  Oft höfum við farið upp í um 300 þúsund í verðlaun og þá tvisvar á ári, bæði fyrir haust og vorönn.  Halla Ólöf Jónsdóttir náði 10% léttingu á 8 vikum og fékk 6 mánuði fyrir það, að auki fékk hún 4 mánuði fyrir fyrir flesta sentimetra og hlutfallslega flest kíló farin hjá kvöldhópnum.  Katrín Mörk gerði það sama hjá morgunhópnum en hún er búin að léttast um rúm 40 kíló á árinu.  Guðlaug Halla og Steinunn Hauks náðu 10% léttinu á 16 vikum og fengu 2 mánuði fyrir það og svo fóru 4 mánuðir í  mætingaverðlaunin. Glæsilegur árangur hjá ótrúlegum konum.