24.01.2013
Það er mikið hringt til að athuga hvort hægt sé að koma inná námskeið. Það er fullt á Nýtt útlit kl 16:30 og
6:10, einnig Gravity vefjagigt kl 17:30. Tvö pláss eru laus í Gravity Extra kl 16:30 sem er fyrir þau sem eru 30 kg of þung eða meira. 3 laus
pláss eru í Gravity vefjagigt kl 18:30. Mömmuþrekið byrjaði á mánudag og þar er nóg pláss, 6 vikna námskeið.
Einnig er hægt að komast að í nýjum lífsstíl kl 18:30 og nýju lífi kl 9:30, 8 eða 16 vikna námskeið. Líka
möguleiki að vera eitthvað styttra. Tryggvi og Birna eru byrjuð með unglinganámskeið og eina námskeiðið sem ekki er byrjað er Grit.
Tækifæri fyrir þau sem eru í þokkalegu formi að taka þjálfunina lengra.
20.01.2013
Ólatíminn er alltaf jafnvinsæll hjá þeim sem vilja taka verulega á því. Skemmtilegir og ögrandi þrektímar á
laugardagsmorgnum , smoothie og pottur og spjall á eftir. Sterkur kjarni mætir alltaf í Body Balance og voru 27 mættir í gær. Einstök stemming
og þar er heiti potturinn fastur punktur á eftir. Kl 12 á laugardögum fyllist síðan stóri salurinn, 50 konur og stelpur, diskóljós,
sviti og stemming hjá Evu Reykjalín í dansi. Við sjáum ný andlit á hverjum einasta laugardegi enda er frítt í þessa tíma
og hefur verið í ein 5 ár eða meira.
17.01.2013
Anna er að kenna troðfullan hádegistíma í Body Pumpi núna. Allir tímar eru að fyllast og aðsóknin í tækjasalinn er
mikil. Við bendum á nýjan tíma kl 18:30 á fimmtudögum, 30 mínútna core, CXWORX. Ótrúlega góðir tímar
fyrir kjarna líkamans. Frábærir fyrir alla, íþróttafólk sem vill gera betur í sinni íþrótt, skrifstofumanninn sem
þarf að geta setið við tölvuna allan daginn, bílstjórann sem þarf að geta setið í bílnum allan daginn, verslunarfólk sem er
á stjáklinu allan daginn. Ef miðjan er sterk þá er lífið auðvelt.
15.01.2013
Við ætlum að bjóða uppá aukatíma í Hot Yoga, teygjum og slökun í heitum sal annan hvern fimmtudag kl 18:30 og annan hvern föstudag kl
16:30 fyrir þau sem eru á lífsstílsnámskeiði, Gravity vefjagigt og Gravity extra. Fyrsti tíminn verður næsta fimmtudag kl 18:30.
Rólegra og einfaldara yoga, meiri teygjur og slökun í restina. Tökum svo tíma með foamrúllum og etv litlum boltum og enn meiri teygjum í volgum
sal. Ekki alltaf yoga.
14.01.2013
Viltu komast í svaka form og æfa með Tryggva og Önnu 2x í viku kl 6:10? Grit eru nýir tímar frá Les Mills og kannski þeirra svar við
CrossFit. 30-45 mínútna tímar, stuttir, snarpir og krefjandi. 6 vikna námskeið byrjar þriðjudaginn 22. janúar og hópurinn
verður lítill því þetta er einstaklingsmiðuð þjálfun. Þetta er ekki námskeið fyrir byrjendur. Skráning er hafin,
fyrstir koma, fyrstir fá.
10.01.2013
Berglind Rafnsdóttir byrjar í næstu viku að kenna línudans hér í kjallaranum. Hún verður með framhaldshópinn á
þriðjudögum kl 20 og byrjendur á miðvikudögum kl 20. Hver tími kostar 600kr. Skemmtilegir dansar við flotta tónlist. Frítt í
fyrstu tvo tímana.
10.01.2013
16 .30 námskeiðin: Gravity extra og Nýtt útlit eru að byrja í dag. Vefjagigtargravity hóparnir tveir byrjuðu í gær og
lífsstíll og Nýtt útlit 6:10 og Nýtt líf 9:30 byrja þann 14. Gravity fyrir 60 ára og eldri er byrjað og unglingarnir fara af stað
14. janúar. Alls eru þetta 10 hópar og því mikið um að vera. Gott er að mæta daginn áður t.d. og borga og jafnvel fara
í mælingar (lífsstíll) um helgina.
09.01.2013
Hólmfríður og Aðalbjörg eru með reyndustu Body Balance kennurum landsins. Í dag kl 17:30 ætla þær að frumflytja nýjan Balance
frá Les Mills númer 59. Body Balance tímarnir eru skemmtileg blanda af góðum jóga og pilatesæfingum sem eru framkvæmdar í
flæði við einstaka tónlist. Í upphafi tímans fá allir að kynnast Tai Chi, einföld upphitun þar sem öndunin hjápar við
að kyrra huga og tilfinningar.
07.01.2013
Frábær námskeið hjá Birnu og Tryggva. Skráning stendur yfir og þau byrja 14. janúar.
07.01.2013
Fullt er á bæði vefjagigtar Gravity námskeiðin. Einnig er fullt á Nýtt útlit kl 16:30 og 3 laus pláss á Gravity Extra.
Nóg pláss er enn á Lífsstíl og Nýju útliti kl 6:10 og 9:30.