Nýtt útlit

Skráning á ný námskeið sem heita Nýtt útlit hefst eftir helgi.  Næsta 6 vikna námskeið kl 16:30 byrjar 21. febrúar.  Heitir tímar á þriðjudögum og fimmtudögum og einn Gravitytími á mánudögum eða miðvikudögum.
Hægt er að koma inní 9:30 námskeiðið hvenær sem er en þær eru flestar á 8 vikna prógrammi og sumar eru skráðar á 16 vikur sem er ódýrast.  Þar er nóg pláss og hægt að velja um tíma kl 9:30 alla virka daga.  6 vikna námskeið kl 6:10 byrjar svo 25. febrúar.  Heitur tími á mánudögum og miðvikudögum, Gravity á föstudögum.  Þessi námskeið eru geysi vinsæl og fyllist tíminn kl 16:30 mjög hratt. Fjölbreyttir, öflugir dekurtímar í hitanum með stóra og litla bolta, lóð, teygjur og foamrúllur.