Fréttir

Sprenging í Body Balance

Það er troðið í þessa tvo Body Balance tíma sem við erum með í hverri viku.  Byðjum fólk um að koma snemma á laugardögum til að tryggja sér plássið.  Það er erfitt að finna pláss fyrir þriðja tímann en við erum að leita að plássi sem hentar.   Einnig er vel fullt í Hot Yoga tímana 3 sem eru seinni partinn og gott að koma 5 mín fyrir tímann til að vera öruggur með dýnu. 

Tækjakennsla

Bendum á að kennslan á prógrömmin í tækjasalnum hættir eftir 14. febrúar.  Notfærið ykkur kennsluna þangað til, hún er þrisvar í viku.  Eftir þann tíma er hægt að semja við Öbbu og Óla um kennslu í salnum.  Kennslan kostar ekkert.

Nýtt útlit

Skráning á ný námskeið sem heita Nýtt útlit hefst eftir helgi.  Næsta 6 vikna námskeið

Breyting á tímatöflu

Það eru 3 tímar að syngja sitt síðasta í dag.  Loka þrektíminn kl 6:10var í morgun og þá mættu 14 manns.  Við ætlum að færa þennan tíma til og hafa hann á mánudagsmorgnum.  Erfitt er að gera öllum til hæfis á morgnana, sumir vilja bara spinning meðan aðrir vilja bara þrek.  Síðasti Body Fit tíminn kl 8:15 var í morgun.  Þrátt fyrir miklar vinsældir á þessum heitu boltatímum seinni partinn var hann ekki að ganga á morgnana.  CXWORX kl 18:30 var bara prufa í janúar og náði sér ekki á strik.

Gravity vefjagigt kl 18:30

Það eru nokkur pláss laus á næsta námskeið í Gravity vefjagigt kl 18:30.  Fullt er kl 17:30 og það er hægt að skrá sig á lengra en 4 vikna námskeið ef vill og er það mun ódýrari kostur.

Svaka myndataka

Það voru um 20 leikarar sem mættu til að taka þátt í sjónvarpsauglýsingunni fyrir Bjarg.  Elvar myndatökumaður stjórnaði þessu öllu með mjúkri jógahendi þannig að allir voru þolinmóðir og gerðu það sem þurfti til að allt gengi upp.  Kærar þakkir sjálfboðaliðar og aðstoðarfólk Elvars.

Að skoða tímatöfluna

Athugið að þið sjáið ekki alla tímana sem eru í boði suma daga hér á forsíðunni nema" skrolla" niður. Flestir dagar innihalda það marga tíma að þeir neðstu sem eru kl 17:30 og 18:30 sjást ekki.  Fáum nokkrar hringingar á dag frá fólki sem er að spyrja hvort þessir tímar séu hættir. Svo er öruggast að skoða alla tímatöfluna, þar er allt rétt.

Tímar að hætta

Við gáfum nokkrum tímum sem eru ekki vel sóttir séns út janúar.  3 tímar á fimmtudögum eru á útleið.  Tökum einn fimmtudag í viðbót og svo hætta þessir tímar:  Spinning/þrek kl 6:10, Body Fit kl 8:15 og CXWORX kl 18:30.  Við munum líklega setja inn CXWORX 30 mínútna core tíma kl 6:20 á þriðjudagsmorgnum. 

Sjálfboðaliðar í upptöku?

Það á að fara að taka upp sjónvarðsauglýsingu fyrir Bjarg á sunnudaginn.  Okkur vantar sjálfboðaliða til að vera í tímum eins og Hot Yoga, Boltatíma, Body Pumpi og í tækjasal.  Zumban verður tekin upp síðar.  Þetta mun taka 3-4 klst og byrjar kl 10.  Hægt að koma inní kl 12 t.d. eða fara eftir 1-2 klst.  Við bjóðum þeim sem vilja leggja þetta á sig mánaðarkort sem má ráðstafa að vild.  T.d. gefa í afmælisgjöf eða eitthvað.  Elvar myndatökumaður byður fólk um að vera ekki alveg svartklætt, ok með buxur en helst í lituðum bolum. Þetta er bara skemmtilegt tækifæri, sjáumst kl 10. 

Dans, dans

Sh´bam tíminn á föstudag fellur niður.  Það verður gestakennari í Evudansi á laugardag kl 12:00.  Inga danskennari frá Dalvík mætir og heldur uppi fjörinum í fjarveru Evu.