21.09.2013
Það hefur komið í ljós að margir eru ánægðir með lengri opnunartíma og munum við halda honum. Samt er enginn að koma eftir
kl. 21 á föstudögum. Við ætlum því að stytta föstudagana í 21. Áfram verður opið til kl 23 aðra virka daga og
10-16 um helgar.
20.09.2013
Núna erum við að klára viku 3 í Hot yoga áskoruninni. Um 70 manns eru skráðir í hana og hafa flestir verið duglegir að
mæta. Við erum með 10 tíma í boði vikulega og það er misjöfn mæting í þá, allt frá 5 og uppí
rúmlega 40. Þegar áskoruninni er lokið munu vinsælustu tímarnir halda áfram, 4-5 tímar vikulega. Hvetjum ykkur til að
mæta vel um helgina, tveir föstudagstímar, einn á laugardag og svo langi tíminn á sunnudag, allir verða að prufa einn svoleiðis.
17.09.2013
Gluggarnir og hurðin út á útisvæðið voru komin í kl 16 á laugardag. Fumlaus handtök steypusögunar norðurlands og smiðanna
voru ástæðan. Það var opið allan tímann og hægt að fylgjast með. Núna er bjart í salnum og flott að horfa yfir
í heiði. Tækjasalurinn er að virka vel og við erum búin að setja inn ýmis smáatriði sem skipta máli. Langur opnunartími
mælist vel fyrir svo og að það kosti aðeins um 4000kr á mánuði að æfa í þessum sal og komast í einn þrektíma
vikulega.
13.09.2013
Í morgunn kl 11 vippuðu steypusögunarmennirnir fyrsta hnullungnum út með krana, 4 tonn og allt gekk vel. Smiðirnir skelltu svo fyrsta gluhgganum í.
15 manns voru að æfa og urðu vitni að þessari aðgerð en engum varð meint af.
13.09.2013
Hólmfríður og Aðalbjörg frumflytja nýjan Body Balance á morgun, nr. 62. Til gamans má geta þess að núna er eitt lag með
íslenskri hljómsveit, Of monsters and men eru þarna með Little talks og við gerum Pilates kviðæfingar meðan við hlustum á lagið.
13.09.2013
Því miður hefur fólk ekki notfært sér gæsluna og yogað fyrir börnin á laugardagsmorgnum. Gerður rukkaði 500 kr fyrir
skiptið og sinnti börnunum vel, en of fáir eru að notfæra sér þessa þjónustu til að hún borgi sig. Þannig að
það er engin gæsla á morgun en salurinn niðri er opinn fyrir eldri krakka og eitthvað af leikföngum eru þar, dýnur og boltar.
12.09.2013
Núna eru spinninghjólin komin á stóran sal og nóg plass og gott loft. 40 hjól og hægt að spinna t.d. einu sinni í viku hjá
Tryggva og þá fylgir þrektíminn á laugardögum með fyrir 14.000 kr. fram að áramótum, það er bara slikkur. Já,
kannið málið hvort þið voruð að mæta oftar en 2x í viku, ef ekki þá er þetta flottur díll. Body Balance 1x í viku
fram að áramótum kostar líka 14.000 kr og þá fylgir einn Hot yoga tími með og Bjargþrekið ef vill, en Balancinn er á laugardögum
eins og þrekið.
Einmitt, til hagsbóta fyrir viðskiptavininn.
12.09.2013
Ef þú kaupir árskort í tækjasalinn, 4083 kr. mánuðurinn, æfir ca. 4x í viku að þá kostar hvert skipti um 200 kr. Er
hægt að sleppa þessu? Heitir pottar, gufubað, leiðsögn í sal, æfing dagsins 3x í viku þannig að þú færð alltaf
eitthvað nýtt og spennandi frá þjálfaranum. 52 þrektímar fylgja kortinu.
12.09.2013
Það er verið að saga götin fyrir gluggana í tækjasalnum næstu 3 daga og því smá hávaði og einhver truflun. Byðjum
viðskiptavini að afsaka óþægindin sem af þessu verða. Það verður opið hjá okkur meðan á þessu stendur. Eftir
stendur svo bjartur og fallegur tækjasalur með flottu útsýni og aðgengi að útisvæði.
06.09.2013
Óli og Tóta verða með stóra þrektímann í fyrramálið. Síðast komu 35 og við viljum fá 55 núna.
Þau verða með allt undir, tækjasal og stóra þreksalinn, stigann og hjólin, spennandi.