Heitir tímar vinsælir.

Bjarg er eina stöðin á Akureyri sem býður uppá tíma í heitum sal.  Hot yoga er komið til að vera og margir hafa ánetjast þeim tímum og fengið bót meina sinna, liðkast og styrkst.  Heitu bolta og þrektímarnir hennar Öbbu eru líka endalaust vinsælir og margir segja að þeir séu það besta sem þeir hafi prufað.  Fjölbreyttir tímar þar sem hún tekur tabata með boltana og ýmsar aðrar uppsetningar í hitanum.  Rúllutíminn hjá Guðríði og Andreu hefur svo slegið í gegn í haust og er eitthvað sem er líka komið til að vera.  Þær eru að kenna fólki sjálfsnudd og losun með foamrúllum, golfkúlum og litlum boltum.