Líf og fjör á kvöldin, æfing dagsins.

Já, menn eru að lyfta hér til kl 11 á kvöldin og það fjölgar bara jafnt og þétt í hópnum.  Við hækkum í græjunum og þyngdirnar fljúga upp. Nýji tækjasalurinn er að virka vel, enda er búið að liggja yfir uppröðuninni í hann og alltaf verið að laga til og halda öllu á sínum stað.  Fleiri og fleiri eru farnir að notfæra sér æfingu dagsins sem Óli setur uppá töflu í tækjasalnum.  Þetta sparar heilabrot um hvað skuli gera í dag.  Óli er með endalausar hugmyndir og samsetningar og hvetjum við fólk til að skoða þennan möguleika.