Stór salur, nóg pláss

Nú er komin góð reynsla á stóra þrektímasalinn.  Fjölbreytni þrektímanna hefur aukist og var góð fyrir.  Plássið er líka gott og það fer vel um 40 manns og hægt að vera með 60-80 manna tíma. Nóg pláss fyrir stóra danshópa t.d. og risa þrektíma. Salurinn er til leigu fyrir sanngjarnt gjald.  Hægt er að leigja hann eitt skipti eða festa hann einu sinni eða oftar í viku.  Vinnuhópar og aðrir geta leigt salinn og verið með sína tíma og sinn kennara.