Fréttir

Skemmtileg helgi!

Góð aðsókn var um helgina bæði í alla tímana, tækjasalinn og krakkarnir voru duglegir á sunnudeginum. Þökkum öllum fyrir komuna og samveruna. Það voru 9 manns sem mættu í fjallgönguna um kvöldið. Veðurútlitið var ekki gott fyrir hana en hópurinn fékk blankalogn, frábært útsýni en það var frekar kalt.

Happadrætti Bjargfastra!

Við drógum í happadrætti Bjargfastra um helgina. Bjargfastir eru þeir sem kaupa fasta áskrift í 3 ár og borga 3194kr á mánuði.

Fjörið er byrjað!

Dagskrá laugardagsins 23. júní: Spinning kl. 09:30, Body Pump kl. 10:00, Body Step kl. 10:30, Body Jam kl. 11:00, Yoga kl. 11:30 og Boxercise kl. 12:00. Tímarnir eru bara í 30 mínútur (nema Boxið) og eru opnir fyrir alla.

Boxerscise, hvað er það?

Það hafa nokkrir fengið að prufa boxið í hádegistímanum. En Tryggvi, Anný og Jóna verða með kynningu og tíma í Boxercise næsta laugardag klukkan 12:00.

Frítt að hlaupa og hjóla!

Það hefur aldrei kostað neitt að vera hér í hlaupahóp eða hjólahóp. Hlaupahópurinn er starfræktur allt árið og föstu dagarnir hér eru fimmtudagar klukkan 17:30.

Línuskauta og hlaupanámskeið!

Arnar kláraði 4 vikna línuskautanámskeið í gær og allir skautuðu niður og upp Borgarbrautina, frábært. Hlaupanámskeiðið hjá Rannveigu og Guðrúnu er langt komið og vonandi hafa hlaupararnir notað aðstöðuna hjá okkur sem var í boði.

Jónsmessuhátíð Bjargs!

Jibbííí... Já, það verður hátíð hjá okkur 23. og 24. júní. Opið hús alla helgina og frítt í líkamsrækt. Byrjum með 30 mínútna tíma kl. 09:30 og svo tekur annar við kl. 10:00 og svo áfram til kl. 12:00.

Gaman!

Það voru 19 manns sem mættu i sólarlagshlaupið. 5 hlupu, 7 hjóluðu og 7 gengu.

Frítt í Gravity í sumar!

Það verður frítt í opnu Gravity tímana í sumar. Bendum á að tíminn á fimmtudögum er erfiðari en hinir. Munið bara að stilla bekkinn ekki of hátt ef ykkur finnst eitthvað erftitt.

Sólarlagshlaup upp í Hlíðarfjall.

Hlaupahópur UFA hefur farið í sólarlagshlaupatúra undanfarin ár og þá oftast í Ólafsfjarðarmúlann. Nú á að fara uppí Hlíðarfjall næsta laugardagskvöld.