Lítið um athugasemdir.

Hóffa og Jóna í Body Steppi
Hóffa og Jóna í Body Steppi
Tímatafla haustsins er búin að hanga uppi í hálfan mánuð til umsagnar og athugasemda. Tvær óskir voru áberandi fjölmennastar og var orðið við þeim. Tímatafla haustsins er búin að hanga uppi í hálfan mánuð til umsagnar og athugasemda.  Tvær óskir voru áberandi fjölmennastar og var orðið við þeim.  Önnur var sú að hafa fyrstu tímana á morgnana kl. 06:10 en ekki 06:20 og hin að bæta við spinningtíma á fimmtudögum kl. 08:15.  Ótrúlega margir vilja fá leikfimi fyrir 6-12 ára börn.  Við teljum að skólarnir og íþróttafélögin sinni þessum aldri vel og sá tími sem við höfum til að sinna þeim væri á þeirra skólatíma.  Salirnir okkar eru uppteknir fyrir okkar  viðskiptavini(sem kaupa kort) frá kl 16:00 á daginn og til 20:30. Endanleg mynd er komin á töfluna sem er hér á síðunni.