Fréttir

Geggjuð gleði!

Það var sko gaman í áramóta-gleðitímanum. Um 70 manns mættu og Abba byrjaði með diskó/kántrý upphitun. Hún og fleiri voru í Jane Fonda stílnum og margir skemmtilega klæddir.

NÁMSKEIÐ!!!!

Nú er skráning í gangi á 7 Gravity námskeið, 3 lífsstílsnámskeið og eitt Gravity Pilates námskeið. Gravity námskeiðin hefjast 7. janúar, Pilates 8. janúar og lífsstíllinn 14. janúar.

Allir tímar inni!

Bendum fólki á að þeir tímar sem við fellum út stuttu fyrir jól eru komnir inn aftur. Skoðið tímatöfluna vel og hvernig væri að drífa sig af stað.

Allir mættir aftur!

Opnum aftur í dag eftir gott jólafrí. Bætum tímunum inn aftur sem við tókum út rétt fyrir jól. Það verður því Body Pump í dag kl. 17:30 ef þið verðið dugleg að mæta.

Áramótajamm!

Abba, Eva og Gerður ætla að skemmta sér og öðrum með brjáluðum Body Jam tíma á morgun. Hvetjum alla til að mæta í áramótadansdressi og sletta ærlega úr klaufunum.

ÁRAMÓTAGLEÐI

Á laugardaginn kl. 09:30 ætlum við að brjóta upp hefðbundna kennslu og vera með áramótatíma svipaðan og í fyrra. Vonumst eftir 80-100 manns og byrjum á léttri upphitun með öllum.

JÓLASPINNING

Í síðasta spinningtímanum fyrir jól, á föstudaginn kl 06:20 verður sannkallaður jólatími. Spiluð verða "öðruvísi jólalög" í bland við nokkur klassísk, verðlaun fyrir flottasta jóladressið og brjálað stuð. Komdu þér í jólaskap á jólahjólinu.

Jólagetraun

Getraun ársins! Þessi sást á brettinu, Stúfur eða þvörusleikir?

Jólahvað?

Það er fullt í spinning núna, um 30 manns og allir í jólastuði. Spinningkennararnir komu og skreyttu salinn með músastigum og spreyjuðu á speglana.

JÓLAHJÓL

Það var svaka stemming í Liverpoolþemanu í spinning sl. föstudag og flestir í fótboltabúning en ekki bítlabúning. Anný verður með "jólahjól" þann 14. des.