Fréttir

Vaxtamótun fyrir sumarið.

Við mælum eindregið með 4 vikna Gravitynámskeiði ef þú vilt sjá skjótan árangur. Finna fyrir stinnum vöðvum og sjá breytingu á skrokknum. Það er fullt á námskeiðin kl 06:15, 09:30 og 17:15, en 1 sæti laust kl 08:30.

Skáldið úr Kjarnafæði er mætt!

Helgi stórskáld mætti í gær, dvaldi lengi, samdi vísur og seldi kjöt. Hér kemur vísan sem var samin: Hérner gott að hafa kraftinn. Halda út í tíma fjóra. Ávallt lokaðann hafa kjaftinn, nema vatnið þarf að þjóra.

Línudans!

Íslandsmeistaramótið í línudansi er 13. maí. Abba er búin að semja dans og fyrsta æfing er á föstudaginn langa kl 16:00 hér á Bjargi.

Takið gestina með á Bjarg!

Nú eru páskarnir á leiðinni og bærinn að fyllast af fólki. Munið að við tökum vel á móti öllum sem vilja prufa að æfa hér og allir fá einn frían prufutíma.

Gravity námskeið

Næsta Gravitynámskeið byrjar mánudaginn 10. apríl kl 06:15. Það er fullt á það nú þegar. Hin þrjú byrja svo eftir páska, 24. apríl. Þau eru kl 08:30, 09:30 og 17:15. Skráning er í gangi.

Tryggvi pabbi

Tryggvi spinningkennari varð pabbi í morgunn. Hann og konan hans eignuðust 16 marka stelpu og óskum við þeim til hamingju með prinsessuna.

Boltarnir á sinn stað!

Það er loksins komin stöng og varanleg geymsla fyrir boltana í tækjasalnum. Einnig var allt smádótið hengt upp og komið gott skipulag á allt dótið hans Davíðs.

Gaman í partýinu!

Það komu um 50 manns á Bjarg á laugardagskvöldinu og skemmtu sér við spjall og dans. Við erum ánægð með hvernig til tókst og eru myndir væntanlegar.

Páskar

Það verður lokað hjá okkur á föstudaginn langa og páskadag. Á skírdag og annan í páskum verður opið frá 10-14. Laugardagurinn er venjulegur dagur, opið frá 09-16 og allir tímar inni.

Það verður partý!

Já, nú skemmtum við okkur annað kvöld. Byrjum í heita pottinum kl 18:30 fyrir alla sem vilja. Annars mæting kl 20:00 fyrir þá sem ekki koma í pottinn.