Fréttir

Fækkum tímum í júlí

Það eru tveir tímar sem eru illa sóttir á morgnana núna yfir hásumarið.  Við ætlum því að fella þá niður fram yfir verslunarmannahelgi.  Þrektíminn á fimmtudögum kl. 6:10 og á föstudögum kl. 8:15.  Bendum þeim sem eru duglegir að mæta á að Óli er alltaf á staðnum á morgnana og til í að hjálpa í tækjasalnum og kenna ykkur að fara eftir æfingu dagsins.  Bara skemmtileg tilbreyting og spennandi fyrir þá sem hafa ekki enn prufað tækjasalinn.  Það verður þrektími í fyrramálið kl. 8:15 og svo verður frí næstu fjóra.

Frábær árangur hjá einstökum hóp!

Fyrsta FIMM / TVEIR námskeiðið okkar kláraðist í gær.  Fólkið sem tók þátt æfði lágmark 5x í viku í 10 vikur.  Óli, Abba og Anna sáu um þjálfun og Hrönn Harðardóttir úr Biggest Loser ísland um uppörvun og miðlaði af sinni reynslu. Mikil keppni var allt námskeiðið um vegleg verðlaun, 100.000 kr. plús þrekkort í eitt ár.  Hildur Björg Ragnarsdottir léttist mest hlutfallslega eða um 14,9%.  Næstar komu Katrín Mörk Melsen með 13,95% og Guðrún Ásmundsdóttir með 13,85%.  Þær fengu líka verðlaun eða 50% afslátt af öðru 10 vikna námskeiði.  Tvö önnur náðu yfir 10% léttingu sem er glæsilegt á svona stuttum tíma.  Tölur eins og 10 til 16 kg. sáust hjá þessum einstaklingum.  Vaxtarlagið breyttist mikið vegna dugnaðar þeirra við æfingarnar, 43 sentimetrar fuku og við sáum tölur eins og 15 sentimetra minnkun á kvið og flestir með um 10 sentimetra þar.  Tl hamingju þið öll með frábæran árangur.

Breyting á tímatöflu

Við ætlum að setja inn opinn Gravitytíma á fimmtudögum kl. 16:30.  Það þarf ekki að skrá sig í hann, bara mæta, pláss fyrir 12 og við búumst ekki við að það verði troðið til að byrja með.  Volgi þrektíminn sem var á þessum tíma er hættur.  Útitíminn á þriðjudögum er líka hættur.

Námskeið að klárast

Nú eru fjögur námskeið að klárast í þessari og næstu viku.  Óli ætlar að halda áfram með útitíma á fimmtudögum kl. 17:15.  Abba verður áfram með heitan tíma á þriðjudögum kl 16:30 og Gravity á fimmtudögum kl 16:30 til að byrja með.  Sjáum til hvort mætingin verður næg til að halda áfram.  Útitíminn á þriðjudögum fellur niður og volgi tíminn á fimmtudögum, en Gravity kemur í staðinn.  Vonum að við þurfum ekki að skrá í tímann, bara mæta.  Þetta myndi þá byrja í næstu viku.  Síðasti volgi tíminn á fimmtudegi er næsta fimmtudag.

Hot yoga á sunnudögum

Hvernig væri að prufa Hot yoga?  Tímar sem koma á óvart og er fyrir fólk í toppformi sem og byrjandann, allir fara að sínum mörkum.  Tíminn á sunnudögum er kl. 11 og er oftast 60 mínútna langur.  Við endum alltaf á slökun í heita salnum og allir fara út sveittir og sælir.

LOKAÐ 17. JÚNÍ

Fullt á Gravity/Bolta námskeiðið

Við erum með fjögur námskeið í gangi núna út júnímánuð, sumarnámskeiðið sem er skokk og þrek á útipallinum, Dekurnámskeið fyrir 50 ára og eldri, FIMM / TVEIR fyrir þá sem ætla að léttast og Gravity/Bolta námskeiðið byrjaði í dag.  Í júlí verða engin námskeið en við byrjum með FIMM /TVEIR námskeið 13. ágúst og líklega Gravity/Bolta námskeið.  Svo koma hin námsikeiðin inn eins og lífsstíll, Dekurnámskeið og Nýtt útlit.  Dansákorun og Hot yoga áskorun í einn mánuð koma svo inn í september.

Afmælisveislur á útisvæði

Við erum með glæsilegt útisvæði sem hentar eintsklega vel undir útiafmæli eða einhverskonar uppákomur.  Heitur pottur, gufubað, stólar og borð, erum líka með diska og glös ef þarf.  Risa timburoallur sem hentar vel fyrir allavega leiki og dans.  Hellulagða svæðið er frábært til að matast og slaka á í sólbaði t.d.  Hluti af inniaðstöðu getur fylgt með, WC, eldhúsaðstaða og setustofa t.d. Þetta svæði er semsagt í boði í sumar, ekki fyrir kvöldpartý heldur til ca. kl. 21 daglega gegn vægu leigugjaldi.

Framlengjum tilboðið!

Vegna fjölda áskorana og mikillar sölu á þrekkortunum sem gilda í 15 mánuði höfum við ákveðið að framlengja þetta glæsilega tilboð fram að þjóðhátíðardeginum 17. júní.

3 pláss laus!

Það eru 3 bekkir lausir á Gravity/Bolta námskeiðið sem byrjar á miðvikudag.  Gravity tímarnir verða 2x í viku, á miðvikudögum og föstudögum.  Heiti boltatíminn verður á mánudögum og er sá tími opinn fyrir Þrekkortshafa og aðra sem eru á námskeiðum.