Fréttir

Allt fullt kl. 6 á morgnana

Það var troðfullt í Hot yoga í morgun kl. 6:10.  Spinningtíminn á föstudagsmorgnum hjá Tryggva er líka alltaf fullur en við erum með um 40 hjól.  Gott er því að mæta tímnlega í þessa tíma.  Það eru þrír Hot yoga tímar í dag, kl. 6:10, 9:15 og 17:15.  Þrektíminn kl. 6:10 á þriðjudögum er svo í umsjón Tótu, Jonna og Örnu Bennýar og þar er pláss fyrir 60 manns og óþarfi að mæta snemma.  Hvetjum alla til að prufa þrektíma hjá þessum ungu og spræku kennurum.

Lúxus salur

Heiti teygjusalurinn er opinn fyrir alla sem æfa á Bjargi.  Þú getur farið inn þegar ekki eru tímar í gangi, gert þínar æfingar í hitanum, teygt og slakað.  Sumir koma í salinn bara til að slaka á en við spilum rólega tónlist allan daginn og þarna er líka rökkur.

Mæta korteri fyrir tíma

Við mælum með því að fólk mæti snemma á sunnudögum í Hot yoga.  Þetta er eini tíminn í vikunni sem er yfirfullur.  Það dugar oftast að mæta korteri fyrir tímann og taka númer í afgreiðslu.  Það fer vel um 20 manns í salnum.  Oftast eru um 15 manns í hinum Hot yoga tímunum og því nóg pláss.  Suma fimmtudaga er hægt að velja um þrjá Hot yoga tíma.  Næsta fimmtudag verður t.d. Hot yoga kl. 6:10. 9:15 og 17:15 og því pláss fyrir alla.  Föstudagstíminn kl. 12:10 er að koma sterkur inn og svo erum við kl. 17:15 þrisvar í viku. 

Geggjaðir hádegistímar

Bjarg er þekkt fyrir góða og fjölbreytta hádegistíma. Óli, Anna, Guðríður, Andrea, Abba, Jonni og Arna Benný sjá um þrekið og því er fjölbreytnin endalaus.  Það er aðalsmerkið okkar að kennararnir rúlla á þrektímunum og Hot yoga tímunum t.d. sem gerir fjölbreytnina meiri og allt skemmtilegra.

Gravity á föstudögum

Hvetjum alla sem ekki hafa prufað Gravity að mæta á föstudaginn kl. 16:30 og fara í gegnum einn alvöru tíma.  Gravity er fyrir fólk í toppformi og líka þá sem eru að byrja.  Álaginu stjórnar hver á einn með hæðinni á bekknum. Anna og Tóta kenna þessa tíma og eru algjörir Gravity sérfræðingar.

Happdrætti

Fyrsti happdrættisvinningurinn var dregin út í gær í Zumbaáskoruninni.  Við munum draga í hverri viku og allir sem eru mættir í tímann draga miða með einhverju heilræði og á einum er aukalega vinningur.  Í gær var Krúttklútur frá Öbbu í vinning.  Næst drögum við út Boozt og verða 5 vinningar í boði.

Gaman í spinning

Nú eru allir komnir af stað í Spinningáskoruninni.  Það eru 28 tímar sem eru í boði í keppninni frá 15. sept. til 15. okt.  40 hjól eru í salnum og sumir tímarnir eru vel fullir.  Við hleypum inn í salinn um 5 mínútum fyrir tímann ef mögulegt er.  Spinningsalurinn er glæsilegur og rúmast hjólin vel.  Rennihurðin er komin upp og skiptir salnum niður í tvo sali þegar spinning er í gangi og þá erum við með Gravity/bolta eða þrektíma í salnum við hliðina.  Mikil hefð er fyrir spinning á Bjargi og við erum mjög heppin með kennara sem hafa bæði ástríðu fyrir tónlistinni og því að hjóla. Einföld og skemmtileg líkamsrækt.

Hot yoga daglega!!

Við bjóðum uppá alvöru heitan sal í Hot yoga.  Góður raki, enginn hávaði í blásurum, nýjar dýnur, góður hljómburður og kennarar með mikla reynslu.  Þú getur mætt 3x í viku kl. 17:15, einu sinni kl. 20, svo erum við með tíma á morgnana kl. 6:10, 9:15 og 11 og einn í hádeginu. Hot yoga fylgir þrekkortinu og að sjálfsögðu öllum námskeiðum og áskorunum eins og spinning og Zumba.

Spinning og Zumba fjörið að byrja.

Spinning og Zumbaáskoranirnar eru að byrja á morgun.  Spinningþáttakendur þurfa að merkja við í spinningsalnum undir eftirlit kennara við hverja komu.  Verðlaunin fyrir mætingameistarann eru 3 mánaða þrekkort og 10 skipta Booztkort. Zumbaáskorunin er ekki keppni og það þarf ekki að skrá sig en við mætum óvænt inní tímana með happdrætti og vinningarnir eru Booztkort, mánaðarkort, bolir, brúsar og fleira skemmtilegt.  Verðið fyrir ákoranirnar er aðeins 7.100 kr. og allt innifalið, allir aðrir tímar og tækjasalur.

Hot yoga á föstudegi

Það var flott mæting í Hot yoga í hádeginu á föstudaginn.  Þetta er til reynslu og tíminn verður inni meðan mæting fæst.  Flott að enda vikuna á yoga og fara inní helgina í jafnvægi.  Tíminn verður um klukkutími og síðast var enginn að flýta sér í vinnuna og því hægt að taka fullan klukkutíma með stuttri slökun.  Hinir Hot yoga tímarnir hafa flestir verið akkúrat fullir.  Salurinn tekur vel við 20 manns og við höfum verið með númer í afgreiðslunni til að afhenda við komu.  Höldum því áfram þannig að fyrstir koma fyrstir fá.  Nóg er að mæta 10 til 15 mínútum fyrir tímann til að komast að.