Fréttir

Bubbi á æfingu

Bubbi Morthens æfir hér þegar hann er á ferðalagi og er þá boxpúðinn vinsælastur.  Stelpurnar í lífsstílnum voru til í að bjóða honum á neðri hæðina og fá eitt lag.  En Bubbi klikkar ekki á litunum, er alltaf í appelsínugulu, flottur!

Næstu námskeið

Nýtt útlit kl 9:30 og 16:30 byrjar næsta þriðjudag, 9. október.  Vegna fjölda óska verða tímarnir 3x í viku en ekki 4x eins og var og þá Gravity einu sinni og heitur tími tvisvar.  Gravity hjá morgunhópnum verður þá á mánudögum og 16:30 hópurinn verður tvískiptur, annar hópurinn á mánudögum og hinn á miðvikudögum.  Næsta Gravity Extra námskeið fyrir þau sem eru 30 kg of þung eða meira byrjar 16. október.

Breyting á tímatöflu og barnagæslu!

CXWORX í hádeginu á þriðjudögum hefur ekki verið vel sóttur og er því hættur.  Barnagæslan er næstum ekkert notuð milli kl 8 og 9 á morgnana, eitt til tvö börn hafa komið suma daga en oftast engin.  þannig að frá og með mánudeginum 15. október byrjar gæslan á morgnana kl 9:15, en ekki 8:15.

Gaman

Skvísutímarnir byrjuðu í gær og það mættu um 15 hressar konur.  Öll námskeið eru í fullum gangi og það er virkilega troðið í suma tíma eins og Body Pump, Hot Yoga og spinning.  Förum að athuga með að afhenda miða í suma tíma, 30 manns í Hot Yoga er hámark.  En það er stemming í tímum þegar margir eru eins og t.d. í súperkeyrslunni hjá Tryggva í gær, pakkaður salur, gaman.

U2 og Drottningarnar

Tryggvi verður með þema í spinning í dag, almennilegt!!!  Drengirnir í U2 fá 60% af tímanum og Queen fá 40%, eða þetta sagði hann í gær.  Gott að mæta tímanlega til að tryggja sér besta hjólið og góðan stað í salnum til að fá tónlistina í æð.

Fullt af spinningtímum

Það geta allir farið í spinning í ca 20 mín 2x í viku kl 6:10 á morgnana.  Flott upphitun og þó að CrossFit æfing sé á eftir þá þarf ekki að taka hana.  Þetta á líka við um 30 mínútna spinningtímana á þriðjudögum og miðvikudögum, Það er foltt að mæta í þá og svo bara heim.  Eða sleppa spinning og mæta bara í CXWORX core tímann.  Þessir tímar þurfa ekki að hanga saman.  Svo má líka koma í 60 mínútna spinningtíma og hætta eftir 45 mínútur ef úthaldið er búið.  10 spinningtímar eru í boði í hverri viku, 20-60 mínútna langir.

Fjölskyldudagur á sunnudag

Börnin verða í aðalhlutverki næsta sunnudag.  Tækjasalurinn verður opin fyrir þau í fylgd forráðamanns.  Þrautabraut verður á neðri hæðinni og drykkir í boði Vífilfells.  Þetta hefur verið sérstaklega vinsæll dagur undanfarin ár og mesta spennan virðist vera að komast í tækjasalinn og þá helst á hlaupabrettin.  Byðjum alla að sýna krökkunum tilitssemi og þolinmæði.

Hot Yoga kl 6:10

Það er hægt að koma í Hot Yoga kl 6:10 á þriðjudagsmorgnum næstu 6 vikurnar.  6x6x6 áskorun er í gangi og það eru fáir á námskeiðinu og því ætlum við að opna tímann fyrir áhugasömum morgunhönum.  Fyrsti tíminn er í fyrramálið og nóg pláss.

Opið á milli námskeiða

Allir sem kaupa sig inná námskeið á Bjargi geta prufað tíma á öðru námskeiði

Allt að fyllast

Það voru rúmlega 40 manns í Ólatímanum í morgun og Óli náði að keyra hópinn að mörkunum eins og vanalega.  Ekki amalegt að fara út í góða veðrið á eftir með smoothie í heita pottinum.  27 komu í Body Balance en Abba kenndi nýja prógrammið, einstök tónlist, góðar æfingar og svitinn lak.  Eva er svo á fullu að dansa núna með stóran hóp að vanda.  Íslandsmeistararnir í knattspyrnu kvenna komu og dönsuðu með Öbbu og Evu í dag, æðislegar og auðvitað laaaang flottastar.