Fréttir

Allt fullt

Það var brjálað að gera í gær og allir tímar troðfullir svo og tækjasalurinn.  Þegar svona er þá er bílaplanið líka vel fullt.  Bendum fólki á að koma gangandi eða með strætó ef það er möguleiki. Annars er bara stuð þegar svona margir eru í tímum.

Þrektími á þriðjudögum

Nú þegar spinningtíminn sem var kl 16:30 á þriðjudögum er horfinn þá græðir þrektíminn öll hjólin.  Bendum því þeim sem voru að mæta í spinning að prufa þrekið.  Hjólin verða eflaust notuð og Elvar mun kenna þessa tíma á móti Hóffu.  Góðir þrektímar sem henta öllum.

Könnun!

Gerum góða stöð betri.  Núna út þennan mánuð er hægt að láta álit sitt í ljós á hverju sem er.  Þau sem fara í tíma geta skrifað á miða hvernig var og hvernig kennarinn stóð sig.  Einnig má skrifa allt í sambandi við aðstöðu á þessa miða og setja í kassa.  Hvetjum ykkur til að vera með og það má skrifa oftar en einu sinni, sérstaklega þau sem eru dugleg að fara í tíma.

Body Pump í dag

Ef þú hefur ekki ennþá prufað Body Pump þá er komið að því.  Jóna kennir kl 17:30 í dag og mun taka vel á því með stöngina, lóðin, pallinn og dýnuna.  Engin spor eru í þessum tímum en Pumpið er frábær styrktarþjálfun og þið fáið góða kennslu í framkvæmd æfinga.

Fækkum tímum

Mætingin í Hot Yoga á þriðjudagsmorgnum hefur verið að dala.  Við miðum við 10 manns eða fleiri til að halda tímim inní töflunni og undanfarna þriðjudaga hafa færri en 10 mætt.  Þannig að báðir tímarnir eru úti.  Einnig eru fáir í spinning kl 16:30 á þriðjudögum og því fellur hann niður fram að áramótum. Body Step tíminn á mánudögum er úti en Hóffa kennir áfram á miðvikudögum.  Munum líklega fella fleiri tíma niður eftir þessa viku.

CrossFit í pásu

Við ætlum að hvíla CrossFit tímana í bili.  Óli verður áfram með morguntímana sem heita spinning/þrek og eru tvisvar í viku kl 6:10.  Hann hjólar í ca 20-30 mínutur og setur svo upp góðan þrekhring sem allir ráða við.  Nú þarf fólk ekki að hafa farið í gegnum grunnnámskeið í CossFit til að geta mætt í þessa tíma.  Vonumst til að sjá fleiri morgunhana í þessum tímum framvegis.

Snjór og læti

Það voru bara hörðustu og brjáluðustu viðskiptavinirnir sem brutust hingað á laugardaginn.  Nú er allt að komast í samt horf og allir mæta galvaskir eftir helgina.  Hvernig væri að mæta almennilega fram að jólum?  Við þurfum alltaf að fella út tíma í loka nóv. og alltof margir hverfa.  Samt er ekkert jólastress og enginn er að baka eða stressast fyrir jólin? Er það???

Einkaþjálfun

Það er góður hópur þjálfara á Bjargi sem sér um einkaþjálfun.  Gott er að fá sér þjálfara þegar farið er af stað og reglulega til að breyta til og læra eitthvað nýtt.  Flestir taka að sér hópa, allt að 4 saman.  Nánari upplýsingar um þjálfarana eru undir einkaþjálfun.

Ólatíminn og lífsstíllinn á sínum stað

Það stóð til að hafa Bjargmeistarann um helgina en það eru ansi margir í burtu og því frestuðum við keppninni.  Óli verður því mættur í fyrramálið með flottan tíma og hann tekur síðan lífsstílinn á eftir í enn flottari tíma.  Hóffa verður niðri með yndislegan Balance í hlýja salnum og svo mætir Eva kl 12 og allar dansskvísurnar.

Gaman í skvísutímunum

Það vantaði greinilega opna tíma fyrir 50 ára og eldri.  Konurnar eru duglegar að mæta og skemmta sér konunglega í góðum tímum hjá Öddu Þóru og Evu.  Látið þetta berast áfram, 6600kr mánaðarkort og tímar 3x í viku kl 16:15.  frjálst að mæta í allt annað.