Fréttir

Margir á hlaupanámskeiðinu

Það eru 40 manns á hlaupanámskeiðinu hjá Sonju, Rannveigu og Óla.  Fyrsta vikan af 6 er í gangi núna og stemmingin góð í sólinni. Opnu tímarnir sem voru í allan vetur falla niður meðan á námskeiðinu stendur.  Sjáum til hvað tekur við eftir námskeið.

Breyting á tímatöflu

Síðasti Gravity plus tíminn verður á morgun og á föstudag verður síðasti CrossFit tíminn kl 8:30.  Hot Yoga timinn á sunnudögum er úti, Gravitytíminn á mánudögum sömuleiðis og spinning kl 17:15 á þriðjudögum.  Þannig að það er einn opinn Gravitytimi eftir á þriðjudagsmorgnum.  Enn er tveir CrossFit tímar inni kl 6:10 á morgnana.  Við munum halda megninu af morgun og hádegistímunum inni í sumar og vera með 2-3 tíma í boði seinni partinn. 

50% afslátturfyrir skólafólk.

Undanfarin 2-3 ár höfum við boðið framhaldsskólunum og HA á Akureyri 50% afslátt af árskorti gegn því að þeir safni 100 undirskriftum.  Núna er verið að safna í öllum skólum og tilboðið á við kennara, nemendur og starfsfólk.  Sala korta fer svo fram í maí á Bjargi og kortin fara í gang 1. júní.  Bendum nýnemum á að þeir geta verið með.  Munum reyna að sinna þeim nýnemum sem misstu af tilboðinu í maí í haust.  33000kr fyrir árskort er geysilega vel boðið og innifalið er öll okkar aðstaða, timar og barnagæsla.

Nýtt útlit, aukanámskeið

Það fylltist á vaxtamótunarnámskeiðið á einum degi og kominn stór hópur á biðlista.  Abba ætlar að finna tíma fyrir annan hóp.  Þriðjudagar og fimmtudagar verða kl 16:30 fyrir báða hópa, heitur tími í salnum niðri.  Gravitybekkirnir eru 12 og því þurfum við að finna tíma á hinum dögunum fyrir Gravity.  Hún mun hafa samband við alla á biðlistanum á morgun.

Barnagæsla

Mánudaginn 30. apríl styttist gæslutíminn seinni partinn og verður til kl 18:30.  Mjög fá börn hafa verið í gæslunni seinni partinn yfir sumarið, en oftast nóg að gera á morgnana.  Í sumar munum við halda áfram að bjóða gæslu 3x í viku á morgnana en breytum í 2x í viku seinni partinn, á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl 16:15-18:30.  Erum ekki búin að dagsetja hvenær þessi breyting verður, líklega í kringum 20. maí.

Vaxtamótun og nýtt útlit

Við ætlum að skella á einu námskeiði fyrir sumarið. 

Föstudagar

Það verður lokað hér á sumardaginn fyrsta.  Síðasta föstudag voru frekar fáir í seinniparts tímunum.  Við búumst ekki við mörgum næsta föstudag, margir í burtu í löngu helgarfríi og hinir að stússast í Andrésarleikunum.  Þess vegna fellum við Body Vive og spinningtímann út. 

Hlaupanámskeið

Rannveig, Sonja og Óli voru með glæsilegt 8 vikna hlaupanámskeið í fyrra.  Þau ætla að endurtaka leikinn og byrja 23. apríl með 6 vikna námskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Viltu leiðbeiningar um hlaupastíl eða prógram fyrir hálft maraþon?  3 fyrirlestrar og æft 3x í viku kl 17:15.  Frítt á Bjarg í alla tíma og potta.  Verð 18000kr, en 14000 fyrir korthafa á Bjargi.

Breytingar á tímatöflu

Þá eru páskarnir búnir og tímunum í töflunni fer að fækka aðeins.  Þið sjáið á korktöflunni hér til hægri hvaða tímar eru hættir.  CrossFit tíminn á föstudagsmorgnum kl 6:10 færist yfir á fimmtudaga.  CrossFit tímarnir kl 8:30 á mánudögum og föstudögum verða út apríl.  Sama má segja um Body Pump í hádeginu á fimmtudögum og Body Vive og spinning seinni partinn á föstudögum.  Sumartaflan mun svo taka við eftir miðjan maí.

Gravitynámskeið

Næstu Gravitynámskeið byrja miðvikudaginn eftir páska.  Tvö námskeið verða i gangi kl 17:30 og 18:30 á mánudögum og miðvikudögum.  Námskeiðin eru ætluð fólki með vefjagigt og önnur stoðkerfisvandamál.