Fréttir

Mánaðarkort á 10.000 kr. í sumar

Sumartilboðið okkar er mánaðar þrekkort á 10.000 kr.  Það gildir í tækjasal og alla hóptíma.  Áfram verður hægt að kaupa mánaðarkort í tækjasalinn fyrir 6.900 kr.

Hot yoga

Það eru ennþá inni 3 til 4 Hot yoga tímar.  Mánudagstíminn er hættur.  Munið að það er ekki troðið í tímana eins og sumir halda og koma ekki þess vegna.  Við erum búin að fella út 3 tíma vegna þess að þeir eru ekki nógu vel sóttir.  Það er nóg pláss í þessum þremur tímum sem eru eftir á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:20, sunnudögum kl. 11 og annan hvern fimmtudagsmorgun kl. 6:10.

Opið á sumardaginn fyrsta.

Tækjasalurinn verður opinn frá 10 til 13 næsta fimmtudag. Allir hóptímar falla niður. Tökum vel á móti sumrinu með góðri æfingu.

Zumba

Þórunn getur ekki kennt Zumbuna næsta laugardag og svo er veðrið að batna og komið fram í maí.  Þannig að Zumban á laugardögum er hætt fram á næsta haust.  Takk fyrir frábæra mætingu í vetur.  Heiti rúllutíminn á mánudögum er líka hættur og Hot yoga á miðvikudögum. 

Breytingar á tímatöflu.

Síðasti Body Balance tíminn fram á haust verður á miðvikudaginn.  Því miður hefur aðsóknin dregist saman í þessa góðu tíma. Hot yoga tíminn á miðvikudag er líka sá síðasti í bili og heiti rúllutíminn í dag.

Spinning á annan í páskum.

Jæja, Óli er byrjaður á páska playlista fyrir spinningtíma kl.10:30 á annan í páskum. Gott að koma og bræða af sér páskalambið. 

Engin Zumba í dag

Zumbatíminn í dag, laugardaginn 4. apríl fellur niður vegna veikinda kennarans.  Salurinn er opinn fyrir þá sem vilja koma og dansa sína dansa í staðinn.  Tækjasalurinn er opinn til kl 16 í dag.

Heitur rúllutími fellur niður

það verður ekkert rúllað í dag. Nýtt lokað námskeið byrjar 10. apríl, næsti opni mánudagstími 13. apríl Hlökkum til að sjá ykkur Gleðilega páska Andrea og Guðríður

Páskar á Bjargi.

Það verður lokað hjá okkur föstdaginn langa og á páskadag. Á skírdag og annan í páskum er opið frá 10 til 13. Engir Hóptímar verða í boði. Allir tímar eru inni á laugardeginum og opið frá 9 til 16. Hot yoga kl 20 miðvikudaginn fyrir skírdag fellur niður.

Body Balance fellur niðut.

Body Balance tíminn næsta miðvikudag fellur niður.  Bendum á Hot Fit tímann kl. 17:30 í staðinn.