Fréttir

Pláss á nýju námskeiði

Við erum búin að bjóða þeim 16 sem voru á biðlista inná Dekurnámskeiðið og nýtt útlit uppá tvo tíma vikulega kl. 18:30 á mánudögum og 17:30 á miðvikudögum.  Hægt er að skrá sig á þetta námskeið en fyrsti tíminn var í gær.  Þessir tímar eru opnir fyrir alla aðra sem eru á námskeiðum eða eiga þrekkort.  Þannig að við erum með 4 til 5 opna Hot Fit tíma vikulega og 4 lokaða. Geysi vinsælir tímar sem hafa slegið rækilega í gegn í kuldanum. 

Hot Fit

Nú getum við sett inn Hot Fit tíma kl. 17:30 á miðvikudögum í staðinn fyrir Body Balance tímann sem fer úr heita salnum og í kjallarann.  Hann verður líklega líka notaður fyrir námskeiðin Nýtt útlit og dekur sem eru yfirfull.

Body Balance í stærri sal

Vegna þrengsla ætlum við að færa Body Balance tímana niður í kjallarann í stærri sal.  Hvetjum því alla gamla og nýja aðdáendur að mæta á miðvikudaginn í kjallarann.  Þar er nýtt gólf og allt nýmálað og flott.  Tíminn verður kl. 17:20

Námskeiðin að byrja

Nýr lífsstíll byrjaði í dag en það eru 45 skráðar á það námskeið og alltaf sama stemmingin og stuðið hjá þessum hóp.  Þarna er fólk sem vill aðhald og mælingar, komast í form og vera í skemmtilegum hóp, læra á rétt mataræði og réttu tökin í ræktinni.  Á morgun byrjar Nýtt útlit kl. 16:20 og líka Gravity/bolti.  Það er hægt að komast að í Gravity/bolta en Nýtt útlit er vel fullt og verður hringt í biðlistann á morgun.  Dekurnámskeiðið byrjar á miðvikudaginn og er það líka vel fullt og vænn biðlisti.  Því miður eru frekar fáir komnir á 5/2 námskeiðið sem á að byrja á miðvikudag.  Einnig viljum við fá nokkra í viðbót á ketilbjöllunámskeiðið sem á að byrja næsta fimmtudag.

Tímataflan, breytingar

Gravitytíminn sem var á föstudögum verður framvegis á þriðjudögum kl. 16:30, opinn fyrir alla sem eiga þrekkort og eru á námskeiðum.  Dekurnámskeiðið verður líka 3x í viku kl. 16:30, ekki 16:20.  Og því færist Body Balance tíminn  á miðvikudögum aftur og verður kl. 17:30 í næstu viku.  Tíminn á morgun verður kl. 17:20.  Þetta eru allr smá tilfæringar og eru ástæðurnar af ýmsum toga.  Heiti rúllutíminn verður líka 10 mínútum seinna á mánudögum eða kl. 17:30. Tímataflan verður fullkláruð um helgina og allir tímar komnir á sinn stað.

Nýr Body Balance

Abba ætlar að kenna nýjan Body Balance á miðvikudaginn kl. 17:20.  Flott tónlist og fullt af góðum yogastöðum í frábærum útfærslum.  Pilates í kvið og bakæfingum og Tai chi í upphitun.  Gerist ekki flottara.

Einn mánuður á 7.100 kr. í janúar.

Við ætlum að koma til móts við alla sem vilja prufa ræktina í einn mánuð á nýju ári á verði eins mánaðar í árskorti, 7.100 kr.  Innifalið í gjaldinu er frjáls mæting í alla tíma, tækjasal, heita potta og gufubað.  Þessi kort verða seld í janúar.  Tilvalið að fara í spinning, þrektíma, Zumbu, Body Pump, Hot yoga, heitan rúllutíma.......

Fullt á námskeiðin!!

Dekurnámskeiðið er fullt og Nýtt útlit líka.  Við ætlum að halda áfram að bæta á biðlistana því það er pláss fyrir einn hóp í viðbót.  Þannig að endilega hringið sem fyrst og skráið ykkur á biðlistana og við munum hafa samband.  Nokkur pláss eru laus á ketilbjöllunámskeiðinu hans Tryggva, við getum bætt við um 10 manns í lífsstílinn og Gravity/bolta námskeiðið.  Einnig er nóg pláss á FIMM / TVEIR námskeiðið. Það er á döfinni að setja inn Gravity námskeið á morgnana kl. 8:15 tvisvar í viku.

Gleðilegt ár

Óskum öllum gleðilegs árs með þökk fyrir það gamla. Takk til ykkar sem mættuð í áramótatímanum þann 30. og í Hot yoga. Elvar, Birna og Hóffa kenndu með Öbbu og Óla. Tveir góðir happdrættisvinningar voru dregnir út. Á gamlársdag var svo allt undirlagt í hlaupunum sem tóku þátt í Gamlárshlaupi UFA.