20.04.2015
Tækjasalurinn verður opinn frá 10 til 13 næsta fimmtudag. Allir hóptímar falla niður. Tökum vel á móti sumrinu með góðri
æfingu.
19.04.2015
Þórunn getur ekki kennt Zumbuna næsta laugardag og svo er veðrið að batna og komið fram í maí. Þannig að Zumban á
laugardögum er hætt fram á næsta haust. Takk fyrir frábæra mætingu í vetur. Heiti rúllutíminn á
mánudögum er líka hættur og Hot yoga á miðvikudögum.
13.04.2015
Síðasti Body Balance tíminn fram á haust verður á miðvikudaginn. Því miður hefur aðsóknin dregist saman í þessa
góðu tíma. Hot yoga tíminn á miðvikudag er líka sá síðasti í bili og heiti rúllutíminn í dag.
05.04.2015
Jæja, Óli er byrjaður á páska playlista fyrir spinningtíma kl.10:30 á annan í páskum. Gott að koma og bræða af sér
páskalambið.
04.04.2015
Zumbatíminn í dag, laugardaginn 4. apríl fellur niður vegna veikinda kennarans. Salurinn er opinn fyrir þá sem vilja koma og dansa sína dansa
í staðinn. Tækjasalurinn er opinn til kl 16 í dag.
30.03.2015
það verður ekkert rúllað í dag.
Nýtt lokað námskeið byrjar 10. apríl, næsti opni mánudagstími 13. apríl
Hlökkum til að sjá ykkur
Gleðilega páska
Andrea og Guðríður
26.03.2015
Það verður lokað hjá okkur föstdaginn langa og á páskadag. Á skírdag og annan í páskum er opið frá 10 til 13. Engir
Hóptímar verða í boði. Allir tímar eru inni á laugardeginum og opið frá 9 til 16. Hot yoga kl 20 miðvikudaginn fyrir skírdag fellur
niður.
23.03.2015
Body Balance tíminn næsta miðvikudag fellur niður. Bendum á Hot Fit tímann kl. 17:30 í staðinn.
16.03.2015
Dekurnámskeiðið er fyrir konur 50 ára og eldri og yngri konur sem eru með vefjagigt og einhver vandamál. Lúmskir, volgir tímar tvisvar í
viku og einn þrektími á efri hæðinni. Tíminn á föstudögum kl. 16:30 er volgur Hot Fit tími hjá Öbbu. Það
er alveg pláss fyrir fleiri skvísur því námskeiðskonurnar mæta aldrei allar á föstudögum. Þannig að við ætlum
að opna þennan tíma fyrir konur sem vilja hreyfa sig á föstudögum í skemmtileghum félagsskap.
14.03.2015
Það eru 4 opnir Hot Fit tímar í tímatöflunni og allir vel sóttir nema einn, kl. 18:30 á mánudögum. Það verður einn
tími í viðbót, næsta mánudag og hann verður mjög líklega sá síðasti. Við settum þennan tíma inn til að
mæta biðlistanum inná Dekurnámskeiðið og Nýtt útlit og höfðum hann opinn til að fylla uppí. Einnig er spinningtíminn
á fimmtudögum kl. 18:30 fámennur á okkar spinningmælikvarða þar sem oftast eru milli 30 og 40 í tíma. Á fimmtudögum eru
í kringum 10 manns að mæta og við munum taka þennan tíma út í apríl. Síðan er möguleiki á því að
við fækkum Body Balance tímunum niður í einn á viku eftir 1. apríl.