Frítt inn í 3 daga.

Við verðum með opna daga 31. ágúst, 1. og 2. september.  Þessa daga geta allir sem eru 14 ára og eldri æft frítt og prufað hina og þessa tíma.  Ný tímatafla tekur við 31. ágúst.  Hvetjum alla til að koma, skoða og æfa.  Bjarg er öðruvísi stöð, þægileg og heimilisleg.  Tækjasalurinn er vel búin og viðbótin við hann er öll efri hæðin með Gravitybekkjum, tækjum, boltum og hjólum.  Hot yoga salurinn er líka opinn allan daginn fyrir þau sem vilja æfa og teygja inní volgum sal og rökkri.  Óli mun halda áfram að setja æfingu dagsins á töflu í tækjasalnum, virkar eins og frí einkaþjálfun allan veturinn.  Hann er oftast við og leiðbeinir frítt.