Zumba og Body Balance

Zumbatíminn á mánudag 31. ágúst fellur niður vegna veikinda.  Reiknum með að fimmtudagstíminn verði inni.  Það verður ekki Zumba hjá okkur á laugardögum í vetur.  Bendum á Body Balance tímana kl. 10:30 í staðinn.  Þar eru gerðar æfingar í takt við tónlist í 55 mínútur.  Allir eru berfættir og æfingarnar koma úr Tai Chi og yoga.  Einn reyndasti Body Balance kennari landsins kennir tímana, Hólmfríður Jóhannsdóttir.  Þessi tími ásamt Ólatímanum á laugardögum fylgja tækjasalskortinu í vetur.