Fréttir

Seinni vigtun í dag og á morgun.

Það voru um 150 manns sem tóku þátt í hófsemiskeppninni yfir jólin.  Nú er komið að seinni vigtuninni í dag og um helgina.  Við munum svo draga út flottu vinningana þriðjudaginn 10. janúar. Árskort, fullt af tímum hjá einkaþjálfara og Gravitynámskeið.

Zumba á fimmtudag

Það verður Zumba á morgun, fimmtudag kl 18:30.  Gleymdist bara að setja hana inn í töfluna eftir jólafríið. Það verða engir tímar eftir hádegi næsta föstudag vegna þrettándans.  Á laugardaginn verður bara Ólatími.  Ætlum að klára jólin á föstudeginum, leyfa ykkur að taka niður skrautið um helgina og mæta svo brjáluð á mánudaginn.  þá koma allir tímar inn eins og Body Jam og Sh´bam, Combat og fleira.  Boxercise tímarnir falla niður á vorönninni.  Body Pumpið á mánudagsmorgnum kemur inn eftir miðjan janúar.  Við munum líklega setja inn opinn Gravitytíma á þriðjudagsmorgnum kl 6:10 og svo er möguleiki á Body Fit boltatíma á fimmtudagsmorgnum kl 6:10.

Leandra og Megan glaðar í pottinum

Þessar stelpur frá USA voru skiptinemar hér sl. sumar og komu í heimsókn til Íslands til að eyða áramótunum á landinu kalda.  Hvergi betra að vera segja þær og brosa í frostinu. 

Nýtt fyrir karlana!!!

Skráning á námskeiðin okkar fer vel af stað.  Við erum með námskeið sem ættu að henta öllum.  það sem er nýtt núna er 6x6x6 áskorun fyrir karla.  6 vikna námskeið þar sem æft er 6x í viku og 6 kg fara ef farið er eftir öllu sem lagt er fyrir.  Sonja Sif og Bryndís Arnars munu sjá um að liðka, styrkja, létta og bæta karlana á þessu námskeiði.  Vikuleg fræðsla í netpósti og mikið aðhald fyrir þá sem það vilja.  Þeir fá Hot Yoga, Body Pump, spinning, útitíma og svo alvöru prógramm í tækjasalinn og góða kennslu.   

Myndir

Erum búin að setja inn fullt af myndum úr áramótatímanum og Gamlárshlaupi UFA.

Um 80 manns hlupu í Gamlárshlaupi UFA

Ágætis þátttaka var í Gamlárshlaupi UFA í gær.  8 manns gengu 10 km en restin hljóp 5 eða 10 km í fínasta veðri og bærilegri færð.  Rannveig Oddsdóttir og Bjartmar Örnuson komu fyrst í mark í 10km hlaupinu og fengu glæsilegar flugeldatertur í verðlaun.  6 tertur og gos voru í útdráttarverðlaununum, ásamt eins, tveggja og þriggja mánaðarkortum frá Bjargi, Gravitynámskeiði og tveimur Bjargtreyjum.  Rub 23 bauð öllum þátttakendum súpu og Bakaríið við brúna sá um brauðið.  Abba og Óli sáu svo um að gera umgjörðina notalega með dýnum, kertum, borðum, stólum og tónlist.  Stefnum á 100 manns að ári.