Fréttir

Jól og áramót á Bjargi

Jóladagskráin er tilbúin og er hér í hægri stikunni undir jól og áramót. Áramótatíminn verður miðvikudaginn 29. desember.

Hot Yoga á þriðjudögum í desember

Við ætlum að hafa opnu tímana í Hot Yoga á þriðjudögum í desember, kl 09:45 og 16:30. Sleppum fimmtudögum og sunnudögum þar til á næsta ári.

Æfum frítt í mánuð!

Þeir sem skrá sig núna á námskeiðin sem byrja í janúar og borga, geta æft frítt fram að námskeiði. Þarna er hægt að krækja sér í frían mánuð.

Frumflutningur í Body Vive og Body Jam

Abba ætlar að frumflytja Body Vive nr 17 á föstudaginn. Þetta er prógrammið þar sem hún kennir á kennara DVD. Happdrætti, diskóljós og stuð. Eva og Gerður eru tilbúnar með nýtt Body Jam.

Skráning á öll námskeið hefst á miðvikudag!

Það er mikið spurt um námskeiðin á næsta ári. Þau byrja flest 10. og 11. janúar og við byrjum að skrá á þau næsta miðvikudag, 1. desember. CrossFit, Mömmuleikfimi, Nýjan Lífsstíl, Gravity, Unglingabox og þrek og Hot Yoga.

Svaðalegt Mix á föstudag

Inga Steinlaug lofar svaðalegum tíma á föstudaginn kl 17:30. Hún mixar saman Body Combat og Body Attack, tvo mjög vinsæla og góða Les Mills tíma.

Gjafakort í jólagjöf

Hvernig væri að gefa Hot Yoga námskeið í jólagjöf, heitasta gjöfin í ár. 4 vikna námskeið kostar aðeins 13000kr með fullum aðgangi að öllum öðrum tímum, tækjasal og pottum.

Body Balance fellur niður og jammið hálftíma fyrr!

Það er workshop fyrir sunnan hjá Les Mills kennurum laugardaginn 27. nóvember. Abba og Eva eru að kenna á workshopinu og fleiri kennarar

Hot Yoga kl 11 á sunnudag

Opni Hot Yoga tíminn á sunnudag verður kl 11:00. Hann verður 90 mínútur og aðeins erfiðari en aðrir tímar. Skráning í hann byrjar kl 09:00 næsta laugardagsmorgun. Þá skráum við líka í opnu Hot Yoga tímana sem verða í næstu viku

Fimmtarþraut Bjargs

Óli og Tryggvi eru að útbúa fimmtarþrautarkeppni Bjargs. Þeir velja 5 æfingar sem keppt verður í og tími tekinn.