Fréttir

Skemmtilegt í opnu vikunni

Við höfum sjaldan fengið eins marga í tíma í opnu vikunni og núna.  Fólk er duglegt að prufa alla tíma og það hefur verið troðið í Hot yoga, spinning, Body Pump, heitu rúllutímana og Zumbu t.d.  Í dag er hægt að fara í þrektíma kl. 16:30, Hot yoga kl. 17:15, heitan rúllutíma eða spinning kl. 18:30. Það var flott mæting í heita þrektímann í morgun kl. 6:10 svo hann er komin til að vera.  Næst verður Hot yoga, alltaf til skiptis.  Nýir kennarar eru að stíga sín fyrstu spor með glans og gamlir hafa engu gleymt.

Nýr Hot yoga salur

Við vígðum nýja Hot yoga salinn í gær.  Hitinn er mýkri, rakinn meiri og hávaðinn í nýju ofnunum miklu minni þannig að kennarinn getur sleppt microfóninum.  Það komast rúmlega 20 manns inn og við læsum hurðinni þegar fullt er orðið í salnum.  Góður hljómur er í salnum, speglar alla leið niður í gólf sem er nýtt og óbrotið.  Hvetjum alla til að mæta tímanlega í heitu tímana en það verða t.d. tveir opnir þrektímar á morgun.  Ekki er æskilegt að fara inn með skó, töskur eða yfirhafnir, notið búningsherbergin.

Lengjum opnunartímann á mánudag 8. september.

Frá og með 8. september lengist opnunartíminn.  Það verður þá opið frá 6 til 23 mánudaga, þriðjudaga, miðvikdaga og fimmtudaga.  6 til 21 á föstudögum, 9 til 16 á laugardögum og 10 til 16 á sunnudögum.

Body Balance kl. 17:15 í dag

Við þurfum að færa Body Balance aftur um korter í dag vegna Dekurnámskeiðsins sem er að byrja.  Tíminn verður framvegis kl. 17:15 á miðvikudögum.

Heitir rúllutímar

Opið er í heitu rúllutímana hjá Guðríði og Andreu þessa og næstu viku (1.-12. sept.) Mánudaga kl. 9:05 og kl. 20:00 Miðvikudaga kl. 12:00 Fimmtudaga kl. 18:30 Góðir tímar fyrir alla, endilega nýtið ykkur opnu vikurnar og prófið frítt. 

Zumba í dag

Arna Benný kennir Zumbuna í dag.  Í næstu viku koma svo inn tveir nýir tímar, fimmtudagstíminn kl. 16:30 sem Arna kennir og svo setjum við inn laugardagstíma kl. 13 í rúman mánuð til að byrja með sem Þórunn Kristín kennir.  Zumbaáskorun Bjargs fer af stað eftir opnu vikuna og stendur frá 15. sept. til 15. október.  Hægt er að kaupa aðgang í þessa áskorun fyrir aðeins 7.100 kr. sem er mánaðargjaldið ef þú kaupir árskort.  Allt er innifalið, aðrir opnir tímar og tækjasalur.