Fréttir

Nýtt útlit

Skráning á ný námskeið sem heita Nýtt útlit hefst eftir helgi.  Næsta 6 vikna námskeið

Breyting á tímatöflu

Það eru 3 tímar að syngja sitt síðasta í dag.  Loka þrektíminn kl 6:10var í morgun og þá mættu 14 manns.  Við ætlum að færa þennan tíma til og hafa hann á mánudagsmorgnum.  Erfitt er að gera öllum til hæfis á morgnana, sumir vilja bara spinning meðan aðrir vilja bara þrek.  Síðasti Body Fit tíminn kl 8:15 var í morgun.  Þrátt fyrir miklar vinsældir á þessum heitu boltatímum seinni partinn var hann ekki að ganga á morgnana.  CXWORX kl 18:30 var bara prufa í janúar og náði sér ekki á strik.

Gravity vefjagigt kl 18:30

Það eru nokkur pláss laus á næsta námskeið í Gravity vefjagigt kl 18:30.  Fullt er kl 17:30 og það er hægt að skrá sig á lengra en 4 vikna námskeið ef vill og er það mun ódýrari kostur.

Svaka myndataka

Það voru um 20 leikarar sem mættu til að taka þátt í sjónvarpsauglýsingunni fyrir Bjarg.  Elvar myndatökumaður stjórnaði þessu öllu með mjúkri jógahendi þannig að allir voru þolinmóðir og gerðu það sem þurfti til að allt gengi upp.  Kærar þakkir sjálfboðaliðar og aðstoðarfólk Elvars.

Að skoða tímatöfluna

Athugið að þið sjáið ekki alla tímana sem eru í boði suma daga hér á forsíðunni nema" skrolla" niður. Flestir dagar innihalda það marga tíma að þeir neðstu sem eru kl 17:30 og 18:30 sjást ekki.  Fáum nokkrar hringingar á dag frá fólki sem er að spyrja hvort þessir tímar séu hættir. Svo er öruggast að skoða alla tímatöfluna, þar er allt rétt.