Fréttir

Ólatími í frí í júlí

Það komu fáir í Ólatíma á laugardaginn þannig að hann fer í frí framyfir verslunarmannahelgi. Byrjum þá á fullu. Body Jam/Zumba verður áfram á laugardögum kl 11 í júlí.

Öðruvísi Zumba

Eva Reykjalín Zumbakennari verður í fríi þessa viku. Gerður Body Jam kennari tekur alla sína uppáhaldsdansa í dag og Abba kemur með best of á miðvikudaginn.

Akureyrarhlaup og rósir

RÓS hlaupanámskeiðinu lauk í gærkvöldi með því að um 20 hlauparar tóku þátt í 5, 10 eða 21 km í Akureyrarhlaupinu. Allir fengu RÓS

Body Pump á miðvikudagsmorgnum er hætt.

Tíminn kl 06:10 á miðvikudögum hefur dalað aðeins og er því kominn í frí. Tveir Body Pump tímar eru inni, á þriðjudögum kl 17:30 og í hádeginu á fimmtudögum.