Fréttir

Útinámskeið 5. maí

Tryggvi og Hulda Elma ætla að bjóða uppá 6 vikna útinámskeið.

Body Jam á miðvikudögum fellur út

Það er farið að fækka verulega í Body Jamminu kl 19:30 á miðvikudögum og næsti miðvikudagur er rétt fyrir páskafrí, þannig að

Body Fit í heitum sal

Næsta 4 vikna Body Fit boltanámskeið hefst 2. maí. Kennt verður tvisvar í viku og verður annar tíminn í heitum sal, 30-37°C. Opni tíminn á fimmtudögum kl 08:15 er í heitum sal og þykir fólki það spennandi og gott. 6x6x6 hópurinn hefur líka tekið heita boltatíma á fimmtudögum og svitinn lekið í stríðum straumum.

Matreiðslukennsla í miðvikudag kl 20:00

Abba verður með matreiðslukennslu á miðvikudag kl 20-21. Hún snarar fram súpum, salötum, léttum réttum, vefjum, hristingum, kexi og nammi sem er 70% hollt og svaka gott. Þetta er fyrir alla

6x6x6 framhald

Það er mikill hugur í stelpunum sem eru að taka þátt í 6x6x6 áskoruninni. Þær æfa 6x í viku og það er tekið eftir dugnaðinum í tækjasalnum og hvað þær hamast í Body Attack tímunum

Body Balance fellur niður á morgun

Því miður fellur Body Balance tíminn kl 18:30 niður á þriðjudag. Bendum áhugasömum á Hot Yoga kl 18:00. Mætið tímanlega því sá tími er alltaf fullur.

Frábær árangur hjá körlunum!

Árangurinn í Karlaáskorun Bjargs var framúrskarandi, þeir sem luku keppni misstu að meðaltali 7.97 kg á þessum 8. vikum! Fjórir einstaklingar misstu meira en 10% af sinni líkamsþyngd á þessum 8. vikum. Gestur Davíðsson vann einstaklingskeppnina, missti 17,5 kg eða 15,4%

Heimsmet í planka!

Júlíus Þór Friðriksson frjálsíþróttamaður úr UMSE setti heimsmet í planka í gær. Planki er staða þar sem olnbogar eru undir öxlum og líkama er haldið þráðbeinum frá tám. Hann hélt þessari stöðu í 22 mínútur en fyrra metið var rúmlega 19 mínútur.

CrossFit og Gravity eftir páska

Það eru tvö Gravitynámskeið að byrja á morgun. Námskeiðið kl 17:30 er fullt en nokkrir bekkir eru lausir kl 18:30. Við erum að klára 8:30 námskeiðið í þessari viku og

2 hópar í Zumbu og pott í kvöld.

Zumban er vinsæl núna og Eva var að kenna í MA í dag og kom svo hingað og tók tvo hópa sem voru að fara í pott og eitthvað meira á eftir. Annar hópurinn tók nuddið með sem er æðislega gott.