Heimsmet í planka!

Júlíus Þór glaður eftir 22 mínútur í planka.
Júlíus Þór glaður eftir 22 mínútur í planka.
Júlíus Þór Friðriksson frjálsíþróttamaður úr UMSE setti heimsmet í planka í gær. Planki er staða þar sem olnbogar eru undir öxlum og líkama er haldið þráðbeinum frá tám. Hann hélt þessari stöðu í 22 mínútur en fyrra metið var rúmlega 19 mínútur. Júlíus Þór Friðriksson frjálsíþróttamaður úr UMSE setti heimsmet í planka í gær.  Planki er staða þar sem olnbogar eru undir öxlum og líkama er haldið þráðbeinum frá tám.  Hann hélt þessari stöðu í 22 mínútur en fyrra metið var rúmlega 19 mínútur.  Vinir Júlíusar tóku atriðið upp og höfðu sjónvarp í bakgrunni svo það sæist að það væri eitthvað að gerast allan tímann.  Nú er bara að sjá hvort heimsmetið fæst staðfest.