Vinsæl námskeið

Námskeiðið Nýtt útlit er alltaf jafn vinsælt og fylltist á það á þremur dögum.  25 konur eru að puða með Öbbu í spinning, heitu þreki, heitum Balance og Hot Yoga og svo í tækjasalnum að fara eftir prógrammi frá Óla.  Þetta er blanda sem virkar svaka vel og þessi námskeið verða pottþétt í boði næsta haust.