Tvö CrossFit grunnnámskeið að hefjast

Við byrjum með tvö CrossFit námskeið á morgun. Fullt er á námskeiðið kl 06:15 en tvö sæti laus kl 16:15. Hulda Elma og Óli munu sjá um kennsluna og má búast við góðu námskeiðiVið byrjum með tvö CrossFit námskeið á morgun.  Fullt er á námskeiðið kl 06:15 en tvö sæti laus kl 16:15.  Hulda Elma og Óli munu sjá um kennsluna og má búast við góðu námskeiði þegar þau tvö leggja saman.  Óli með sína hlaupakunnáttu og áralanga lyftingaþjálfun og Hulda er búin að kenna CrossFit í tæpt ár með góðum árangri.  CrossFit á að henta öllum sem vilja fara örítið lengra í sinni þjálfun og ná alhliða toppformi í þoli og styrk.  Næstu námskeið byrja svo um miðjan september.